sunnudagur, janúar 31, 2010

Tölvuteikning reynir að kyngja epli.



Myndirnar eru ekki í tímaröð. Öh, já nauðsynlegt er að það komi fram. Annað væri hrein og klár sögufölsun.

Nú sit ég í stofunni alelda eða nei annars andvaka. ,, Ein að rolast" myndi amma segja. Það er svo gaman að hlusta á hana tala. Einhvern tímann þarf að gefa út orðatiltækja bók ömmu minnar. Amma er ekki bara ein að rolast, stundum er hún líka drullusokkur. Einu sinni sagði hún að hún væri svo mikill drullusokkur af því að hún hefði ekki farið í Kolaportið og keypt lax eins og hún hafði ætlað sér. Ég sá ekki hvernig lax gæti mögulega komist fyrir á ofhlaðborðinu sem hún hafði hrist fram úr erminni. Þar að auki fannst mér ólíklegt að drullusokkur myndi bjóða mér í svona fínt kaffiboð.
Það er furðulega mikill munur á lítillætistilburðum milli kynslóða. Mamma er minna lítillát heldur en amma og miðað við þær tvær er ég sjálfhælinn monthani.

Ætli ég verði svona þegar ég verð eldri og mun eingöngu nota sagn- nafn- og lýsingarorð sem gera lítið úr gjörðum og hugsunum mínum? Mamma segir alltaf í gríni ,, Fyrirgefiði hvað þetta er lítið og ómerkilegt" þegar hún býður fólki upp á eitthvað fínt. Kannski byrjaði talsmátinn hennar ömmu sem eitt allsherjar spaug.

.. og hérna sorrí hvað þetta er glatað blogg og ómálefnalegt ég bara er eitthvað svo illa menntuð og drusluleg. Ekki það að nokkur sála láti sjá sig hér inni.

Nei, þetta var ekkert sérstaklega gefandi. Þá er nú skárra að monta sig dálítið. En ekki mikið. Fyrsta manneskjan sem minnist á gullna meðalveginn verður rasskellt með gylltri skóflu.

laugardagur, janúar 30, 2010

Frussslubbfriss.

Gerðist ég óvart áskrifandi af munnræpu? Hvaðan kemur þessi gusugangur? Ég skil ekkert í þessu ég sem ætlaði ég að vera húðlöt og þögul framan af ári.

Jæja, fyrst ég er nú hérna. Hér eru nokkrar teikningar úr bókinni sem ég gerði fyrir jólin, Alhæft um þjóðir. Það verður seint sagt að hún hafi slegið í gegn en nokkrir þjóðernissinnaklúbbar eru reglulega með upplestra upp úr bókinni. Þetta var grín geðsjúka barnalandsmanneskja! Ok, best að skutla upp myndunum áður en að munnræpan frussast út úr mér.



Og meira til:



Enn meira skólaskop:



Annars var ég að spila á balli fyrir háskólamenntaða ungpólitíkusa. Það var sturlað fjör, ég gleymdi samt að skila því til þeirra að þetta væri dead end frami á Íslandi um þessar mundir... Af hverju segirðu þetta? AF ÞVÍ AÐ ÞAÐ ER GAMAN AÐ VERA STÓRORÐ! Sparaðu stóru orðin systir góð. NEI.

Klukkan er orðin svo margt að það er næstum því kominn kristilegur tími aftur. Vonandi dreymir mig ekki eitthvað bölvað rugl. Ef það hins vegar gerist þá ætla ég að finna einhvern á morgun og segja viðkomandi drauminn í smáatriðum. Fólk kann að meta það og þá sérstaklega karlmenn.

föstudagur, janúar 29, 2010

Hví brá kjúklingurinn sér yfir veginn?


Aldagömul spurning eða allt frá því að hænur fóru að ganga yfir vegi. Brandarinn er ekkert spes hjá mér en þetta er með því fyrsta sem ég teiknaði á Bamboo Vacom brettið mitt sem er einskonar snertibretti og því fylgir töfrapenni. Það er líklega besta útskýringin. Já líklegast er það rétt.

RÚV Nefskattur ohf. er að slá enn eitt metið með niðurdrepandi föstudagsbíómynd. Ég gjóa öðru auganu annað slagið á skjáinn á meðan ég borða misþroska mangó í boði Bónus. Eða já ekki í boði þar sem ég keypti það sjálf fyrir aura sem ég á eftir að vinna mér inn. Sambýlismaður minn setur svo punktinn yfir i-ið með því að spila fyrir mig Svartan Afgan með Bubba. Upplífgandi stöff.

Fokk ég get ekki hætt.


aaaaaahhh þær koma bara og koma.

Augnablik félagi.


Eftir nánari athugun komst ég að því að heilinn minn er ekkert búinn að vera neitt sérstaklega frosinn. Mér er bara búið að líða þannig af því að það er erfitt að læra nýja hluti eins og að teikna í tölvu.

Hæ litli vinur.

Greyið bloggið mitt. Alltaf gleymi ég þér. En skrans og rogastans, engar sjálfsásakanir enga svipu á bakið. Það er allt í lagi að vera ekki heimsins besti bloggari. Ef ég væri heimsins besti bloggari þá værum við í vandræðum Houston.

Á þessari stundu sit ég og vafra um teikniblogg annarra. Þessi gæi er til dæmis sniðugur.
http://hayillustration.blogspot.com/
Þegar manns eigin heili er frosinn og stirður þá er gaman að fylgjast með hvað annað fólk er hugmyndaríkt. Já og þetta var ekki kaldhæðni bara svona til að hafa það á hreinu.

En úgga búgga hér kemur eiturhress mynd teiknuð í tölvu af manni að kreista krem úr túbu. Ég sagði að heilinn minn væri frosinn.