mánudagur, júlí 30, 2007

coming to america

Bráðum slæst ég í hópinn með Beckham hjónunum og held til Ameríku. Ég ætla að horfa á Frelsisstyttuna með tárvotum augum og þurrka hvarmana með skítugu slæðunni minni. Svo mun ég að öllum líkindum brosa mildilega og hvísla: ,, Ahmerríkahh".

Á fimmtudaginn á ég pantaðan tíma hjá bandaríska sendiráðinu. Að sjálfsögðu er ég á nálum um að vera með alla rétta pappíra svo ég verði ekki send öfug heim. Í dag fór ég á ljósmyndastofu og fékk ferkantaða passamynd af sjálfri mér þar sem ég horfi beint fram, með eyrun úti og brosi án þess að það sjáist í tennurnar á mér. Ég þarf varla að taka það fram að myndin er verulega ljót og ef ég eignast börn þá munu þau ekki fá að sjá hana svo þau fari ekki að kvíða því að einn daginn munu þau líta svona út. En þetta var nú útúrdúr.

Um daginn var ég stödd í húsi á Laugaveginum sem verður brátt að víkja fyrir verslunarmiðstöð. Þá datt mér í hug að það gæti verið skemmtilegt ef Íþróttaálfurinn myndi hætta að atast í feitum börnum og einbeitti sér frekar af jafn miklum krafti að því að vernda Laugaveginn. Í dag finnst mér þetta ekkert voðalega góð hugmynd.

Ef einhvern þarna úti langar til þess að sækja um skóla í Bandaríkjunum þá er ég tilbúin til þess að svara alls konar spurningum um hvernig á að bera sig að. Eftir á að hyggja var þetta ekki svo flókið. Þetta lítur bara út fyrir það í fyrstu þegar maður veit ekkert hvernig maður á að snúa sér.

fimmtudagur, júlí 19, 2007

Oh, the humanity.

í þriðja skiptið í sumar ligg ég hér nær dauða en lífi. Þetta eru afleiðingar af bólusetningum. Ég hef alltaf verið sprautuð á mánudögum og lo and behold, á fimmtudegi er ég sem uppvakningur. Að vísu hefur það hvarflað að mér að þetta sé einfaldlega líkami minn að tilkynna mér að ég sé komin með krabbamein.

Núna ætla ég að setja höfuðið á mér í gufubað yfir potti. Ég hef trú á svoleiðis skottulækningum.

þriðjudagur, júlí 17, 2007

Eplaspitt.

Ég er að taka heilsupillur frá Heilsuhúsinu og er orðin sannfærð um að það sé ekki allt með felldu í því húsi. Svei mér þá ef það er ekki spítt í hylkjunum sem þau eru að framleiða.

Núna er klukkan hálftvö eftir miðnætti og ég var að koma úr garðinum þar sem ég stóð og hengdi upp þvott. Áður en ég þaut út í garð vaskaði ég upp eftir sambýlinga mína. Þar með talinn horror pottinn. Aldrei á ævi minni hef ég séð jafn brenndan botn. Ég vissi ekki að það væri hægt að brenna spagettí svona illilega.

En jú jú ef einhver hefur áhuga á lífi mínu og list þá er hér svona mynda síða sem ég apaði upp eftir systur minni.

http://www.flickr.com/photos/loaloaloa/

Þar sem ég er linkasauður þá er bara best að kópí peista þetta. ha? bara kópípeista þennan fjanda.

fimmtudagur, júlí 12, 2007

jubili

Þá er júbílí næstum hálfnaður. Ég er komin með bikínífar og fjarlægist óðum arískan uppruna minn. Í morgun fór ég í sund og synti. Núna þarf ég nauðsynlega að koma mér upp þolinmæði gagnvart óskipulögðum gamalmennum.

mánudagur, júlí 09, 2007

Eitt i viðbot..

Linkasíðan er í stafrófsröð bara svo þið vitið það.

Mein Gott im Himmel!

Sjáiði bara. Hvílík litadýrð. Til að heiðra systur mína, tók ég mig til og föndraði allskonar vitleysu við bloggið mitt. Núna er til dæmis hægt að kommenta án þess að vera krafinn skilríkja. Svo er ég loksins búin að koma nokkrum linkum fyrir á síðunni.

Annars var ég að hrynja úr Lödu Sport rétt í þessu (það er að segja fyrir tveimur tímum síðan því ég var að hanga á netinu og svo fór ég að dedúa við bloggið mitt.) Ég og Aríaprinsinn(sjá link), Bixí og Gamli keyrðum í allan dag frá Siglufirði til Reykjavíkur. Við venjulegar aðstæður tekur um fimm og hálfan tíma að keyra en við stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni og sit ég hér með dýrmætt góss úr ferðinni. Ég keypti eftirprentun af mynd eftir Sölva Helgason a.k.a. Sólon Íslandus og svo einstaklega falleg póstkort með fleiri fögrum myndum eftir sama mann.

En já há. Við stöldruðum við i í Lónkoti, Sölvabar, Hofsósi(ég er ekki viss um að það teljist sem staður, ekki hræða á ferð), Sölvabar(sumir gleymdu myndavél ofan á bíl sem vildi ekki hafa myndavél ofan á sér og hrinti henni í grasið), Varmahlíð, Staðarskála(eða Staldrinu eins og aðrir vildu kalla það), Hyrnunni og loks á bensínstöð í Pizzabæ (Mosó já sumir kalla það Pizzabæ, Mosó þar sem mánudagur er Miller time). Ástæðan fyrir síðasta stoppinu er sú að á leiðinni til Siglufjarðar hafði víst gleymst að borga fyrir brúsann, bensínbrúsann það er. Núna verður sviganotkun hætt svo ekki fái mannskapurinn flogakast.

Ég varð reyndar ekki vitni að téðri gleymsku þar sem ég fór degi á undan með Múttu, Pápa og Frú Gutt. Á fimmtudaginn var nefnilega för okkar heitið á þjóðlagahátíð. Já jú það hljómar ekki spennandi í allra eyrum en persónulega er ég aðdáandi þessarar tegundar tónlistar. Langspilssmíði ætti að vera skylduverkefni í grunnskólum landsmanna sem og kennsla á hljóðfærið. Heimurinn á nóg af pizzubrettum og lélegum blokkflautuleikurum.

Það er alveg magnað hversu mikinn tíma maður hefur úti á landi. Ég náði að lesa heila bók þrátt fyrir útstáelsi og tónleikaráp, sundferðir og fleira.

En ég má til með að segja frá markaðnum í Lónkoti. Hann er auglýstur sem stórkostlegur markaður þar sem bændur mæta með fersk matvæli, handunnar vörur og ég veit ekki hvað og hvað. Þegar við mættum á svæðið blasti við okkur risastór sirkustjald sem innihélt í mesta lagi ellefur sölubása.

Markaðurinn:

Bás 1: Kona að selja barnavettlinga
Bás 2: Kona að selja barnavettlinga og kleinur
Bás 3: Maður með tvo brauðhleifa og hálffrosinn fisk
Bás 4: Kona að selja nælon blóm og asíska púða
Bás 5: Kona að selja verksmiðjuunna barnaskó
Bás 6: Kona að selja flöskur, verksmiðjuunnar styttur og lukkupakkar. Birgitta keypti einn pakka og ég annan. Í pakka voru glasamottur og flöskuupptakari í laginu eins og kókflaska, í pakkanum hennar Birgittu leyndust glasamottur og já... ekkert fleira. Á mottunum stóð: New York, Big Apple, Manhattan.
Bás 7: Maður að selja ritfangavörur úr búð sem er á Siglufirði
Bás 8: Kona að selja notuð föt
Bás 9: Kona að selja eitthvað dótarí
Bás 10: Maður að selja harðfisk
Bás 11: Kjaftagleiður maður að selja mótorhjólafatnað á tugþúsundir króna, einn bleikan apa sem gefur frá sér hljóð ef þrýst er á trýnið og tvo farsíma. Annan á þrettán þúsund og hinn á sjöþúsund. Nokia eru víst bestir.

Ég bjóst nú ekki við Mið-Evrópsku Blómavali en þetta var nú bara eins og eitthvað Chernobyl Kolaport.

Framhald síðar. Mér er orðið óglatt af þreytu. Góða nótt

miðvikudagur, júlí 04, 2007

Jæja starfsfólk Guinnes Book of Records dragið fram penna og skrifblokk. Nýtt met var í þann mund að fæðast.

Ef frá taldar eru bronseftirmyndir af fólki þá held ég að ég eigi heimsmetið í að vera kúkuð á af fuglum. Áðan sat ég í makindum úti í garði og las. Skyndilega féll eitthvað volgt og slepjulegt á öxlina sem slettist niður á framhandlegg og á kjólinn minn. Þetta var tilræði númer fjögur.

Nú er mér allri lokið. Nú verð ég hreinlega að gerast trúuð og komast að því hvað það er sem vekur reiði Guðs. Þetta hlýtur að vera áminning vegna einhvers sem ég hef gert.

Engan þekki ég sem getur toppað þetta met og þegar ég hafði einungis lent í þessu þrisvar gat heldur enginn toppað mig. Ég þarf greinilega að fara niður í Klifurhús og rannsaka þetta meðal fjallaklifursgarpa.

Á eftir kemur Lísa Páls og sækir mig. Hún ætlar að keyra mig á æskustöðvarnar og taka viðtal við mig um Breiðholt. Jibbí, mér finnst einmitt svo skemmtilegt að tala um einmitt það og núna er ég ekki að vera kaldhæðin.