þriðjudagur, september 29, 2009
laugardagur, september 19, 2009
Lúxussugan.
Í gær var ég að ræða ýmis mál við vinkonu mína. M.a. um námsmennina sem voru á atvinnuleysisbótum á meðan þau voru í námi. Mér varð hugsað til Gísla Marteins og hvernig hann lá á kerfinu þegar hann var í námi með því að þiggja laun frá borginni eða ríkinu á meðan. Hann hætti því nú reyndar en bara eftir að það var gagnrýnt. Sem sýnir augljóslega að honum hafi fundist þetta vera í góðu lagi og líklega fundist hann sjálfur vera sniðugur og hafa komið sér vel fyrir í lífinu. Ég býst við að námsmennirnir hafi hugsað á svipuðum nótum.
Það er sumsé hægt að liggja á kerfinu í nokkrum flokkum. a) Með því að ræna frá skattborgurum b) Með því að ræna frá skattborgurum.
Gísli var bara aðeins flottari á því. Ég sé engan mun. Það er alveg jafn glatað að ræna núðlusúpu og það er að ræna parmaskinku.
Það var nú ekki ætlun mín að fara að tala um eitthvað tengt þjóðlífinu hvað þá fréttum liðinna mánuða. Á hverjum degi keppi ég ýmist við að loka augunum í dásamlegri afneitun fyrir öllu eða skipuleggja flóttann frá þessu 300.000 manna fíaskói.
En snúum okkur að afurðum:

föstudagur, september 18, 2009
elevenandtwelfty.
Hver getur elskað fjörutíuogníu ára gamlan mann? Ég en ekki ef það er einhver úr Stuðmönnum. Ekki að þeir séu eitthvað nálægt 49 árum, allt nýja fólkið er í kringum 25 ára. Valgeir minn Guðjónsson er fjarri góðu gamni. Held ég, óstaðfestar heimildir þetta eru. Mat eingöngu byggt á því sem ég held.
Mig langar að sjá heimlichamyndir og þannig lagað á RIFF. Ég hlakka til þegar ég get farið að stunda kvikmyndahátíðir eins og óð manneskja. Núna er ég of blönk/óskipulögð/tímabundin. Einhver af þessum afsökunum ætti að duga.
Ég er á leiðinni í sund í hellaða sundbolnum mínu. Hann er smekklegur en mjög ópraktískur. Á eftir ætlum við systur að þralla upp í Breiðholt og labba göngustíginn okkar. Hlakka ég til, skemmta mér ég mun.
Spakmæli dagsins eru: Áráttuhegðun er svona allt í lagi bara, eiginlega kannski í hófi samt. Hvað veit ég?

þriðjudagur, september 15, 2009
Jeij, þriðjudagur til þrauta nei ég meina þriðjudagur til heimildamynda. Gott framtak hjá RÚV. Best að sleppa því að kveikja í þar á bæ. Nefskattur er svo hvimleiður að mann langar bara til þess að brenna eitthvað.. djók, mann langar bara að rispa bílana á bílastæðinu fyrir utan Efstaleitið.
Af hverju á ég svona erfitt með nýaldar dótarí, orkusteina og þannig dæmi. Ætli ég sé bara ekki svona jarðbundin skástrik boring. Best að skinka sér út í göngutúr. Fyrst þarf ég aðeins að berja Aríaprinsinn.
Meiri afurðir:

sunnudagur, september 13, 2009
moving on.
Jæja, þá er kreppan loksins búin hahaha vei(klapp og flugeldalæti). Gott hvað Englendingarnir voru næs svo ekki sé minnst á vini okkar í Hollandi. Leitt hvernig fór fyrir auðjöfrunum og ríkisstjórninni þegar risastóra.. djöflaskatan reis upp úr hafinu og...öhm.. skammaði þau og..ogeh.. hérna.. og þau bara hérna.. fóru að gráta og voru alveg hreint miður sín.
Af hverju er fólk alveg hætt að velta öðru fólki upp úr tjöru og fiðri? Söknuður.
Hér koma svo smá afurðir:

Af hverju er fólk alveg hætt að velta öðru fólki upp úr tjöru og fiðri? Söknuður.
Hér koma svo smá afurðir:

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)