Já nú er vor í lofti og það þýðir bara eitt. Ónæmiskerfi mitt gerir uppreisn og líkami minn fer í varnarstöðu. Mig klæjar í nefið og augun og hálsinn og eyrun og húðina í andlitinu og ekki nóg með það þá lekur úr augunum á mér og saltvatnið úr augunum veldur sviða í andlitinu á mér. Ekki má gleyma hnerrunum. Ég hnerra um það bil fjórtán sinnum í röð á fimm mínútna fresti. Þetta samsull er eitt stórt áreiti og er ég því ansi skapstygg um þessar mundir. Ef ofnæminu myndu fylgja einhverjir ofurkraftar þá væri ég sáttari við fyrirkomulagið. Enn sem komið er hef ég ekki fundið neina jákvæða punkta, ég er bara að drepast úr þreytu og ergelsi. Á hverjum degi tek ég risastórar ofnæmistöflur og þær virðast ekki virka fullkomlega. Þetta er svo fáránlegt af því að ofnæmi er gjörsamlega tilgangslaust. Þetta er ekki sjúkdómur og gerir heldur ekki gagn. Ég sé þetta bara sem einhverja stæla. Æ hvað tilveran getur verið úldið drasl. Ef einhvern sárvantar manneskju til þess að vorkenna þá skal ég með glöðu geði taka það að mér að þiggja vorkunnina.
Nú hefi ég í hyggju að birta ofnæmislistann minn í heild sinni:
Frjókorn
Gras
Birkitré
Epli
Plómur
Perur
Kirsuber
Kiwi
Valhnetur
Heslihnetur
Kastaníuhnetur
Möndlur
Hveiti
Sinnep
Þorskur
Hundar
Stuð.
Jæja, en hér koma jákvæðar fréttir. Við þurfum ekki að borga leigu fyrir maí. Þar spara ég mér 103.000 krónur. Auk þess er ég að leggja lokahönd á teikningar fyrir Námsgagnastofnun. Þá get ég einbeitt mér að því að klára lokaverkefnin fyrir skólann. Talandi um skólann, þrjár vikur eftir. Júhúú. Djöfull er ég fegin.



