Nú verð ég bara að játa að ég horfði ekki á einn einasta handboltaleik. Ekki var það nú vegna áhugaleysis heldur vegna þess að ég get ekki horft á Ísland keppa í neinu. Ég verð alltaf svo geðbilaðslega keppnisóð og tapsár að ég er hætt að leggja þetta á mig. Síðasti leikur sem ég horfði á var á sautjánda júní í fyrra. Ég var stödd í heimsókn hjá kunningjum og skyndilega áttaði ég mig á því að ég var orðin snælduóð og gargaði þarna fyrir framan fólk sem ég þekki ekkert of vel. Ísland vann sem betur fer, annars hefði ég líklega farið að grenja.
Gaman að segja frá því að frá því að ég skrifaði Ísland vann sem betur fer, hefur heill vinnudagur liðið hjá. Ég sat í sakleysi mínu og bloggaði og þá var hringt í mig frá veitingastaðnum. ,, átt þú ekki að vera að vinna?" lesist með kólumbískum hreim.
,,Agg" æpti ég upp yfir mig og þaut af stað.
Og hér er ég núna komin aftur heim.
jájá.
mánudagur, ágúst 25, 2008
föstudagur, ágúst 22, 2008
Myndir sem ég á eftir að sjá og skil ekki af hverju ég er ekki búin að sjá.
Diving bell og þarna butterfly
Pan´s Labyrinth (já já ég veit.)
Orphanage (eða hvernig það er skrifað)
Darjeeling bla bla man ekki meira
Bob Dylan myndina
Sweeney Todd söngleikinn (annars vantar mig í Tim Burton Glápsafnið)
Penelope
Persepolis
Eagle vs Shark
Flest eru þetta myndir sem Aríaprinsinn vildi ekki sjá í bíó og ég nennti ekki að sjá ein. Núna nenni ég alveg að sjá þær ein. Nema ef einhvern langi til þess að glápa á videó með mér. Einhvern? Gerðuuuu það?

Ribbaldurinn Bibbi og mamman
er án efa skemmtilegasta barnabók sem ég hef lesið. Kannski er það bara af því að ég las færeysku þýðinguna. Mig minnir að hún hafi upphaflega verið skrifuð á sænsku. Svo skemmir ekki fyrir bókinni að hún er myndskreytt af sömu manneskju og myndskreytti Grænu höndina. Sú hönd eyðilagði fyrir mér afmælisdag. Ég fékk þessa draugasögubók í afmælisgjöf og afmælisgestirnir gátu ekki stillt sig um að lesa upphátt úr henni í boðinu. Vitaskuld varð ég andvaka og las bókina aldrei framar. En myndirnar eru fínar. Mikið væri ég til í að teikna fyrir hryllingsbók. En ekki fyrir börn. Ég er á móti hryllingi fyrir börn. Nema ef börnin eru gefin fyrir hrylling og eiga auðvelt með svefn. Fyrir þau börn er ég alveg til í að teikna lík og úlfa.
Veitingastaðurinn var að sjálfsögðu troðfullur í gær. Ekkert fór úrskeiðis þökk sé nýja kerfi mágs míns. Hann er mjög hrifinn af því að búa til kerfi. Maður frænku minnar mætti síðan á svæðið til þess að anda ofan í hálsmálin á okkur. Ég er farinn að sjá spaugilegu hliðina á stjórnseminni í drengnum. Það er svo sem ekkert erfitt enda er fjölskyldan mín eitt stórt samansafn af stjórnsemisbrjálæðingum, lúffurum og ölkum. Sumir eru með blöndu af þessu þrennu. Enginn í fjölskyldunni er undanskilinn þessari flokkun minni. Amma er til dæmis lúffari en henni tekst líka að stjórna öðrum með síendurteknu lúffi. Æhh já ef lífið væri nú bara eins auðvelt og í Kardimommubæ, hmmm eitthvað er nú alkóhólískt við þetta bæjarnafn.
Í dag ætla ég að vanda mig við að gera ekki dick. Ég ætla í mesta lagi að komast að því hvað í helvítinu er byrjað að vaxa á tánni minni. Ef þetta er varta þá þarf ég einnig að skrifa Guði eða Decode bréf og skammast. Ef þetta er bara blaðra þá ætla ég að fá mér plástur.

fimmtudagur, ágúst 21, 2008
Stamandi nývöknungur.
Ég var vakin af blaðamanni já eða konu og spurð nokkurra spurninga um eitthvað. Mikið er ég heimsk á morgnana.
Er rétt að segja að eitthvað sé stolið úr kollinum á mér eða á að segja að einhverju hafi verið stolið úr kollinum á mér? Allavega er þetta viðtal löngu gufað upp í gegnum heilabörk minn. Ég held að ég hafi meira að segja ropað því áðan. Mig minnir að ég hafi sagt eitthvað svona: ,, Tjaaa...böööh? uu, böh." Svo sendi ég blaðamanneskjunni grátbón(email) um að fá að lesa það yfir.
Jæja en nú dregur til tíðinda. Í gærkvöldi féll enn eitt prinsipp vígið. Ég skráði mig á Facebook. Djöfull þarf ég að stilla mig um að finna ekki eitthvað ,,sniðugt" íslenskt nafn yfir Facebook. Stundum er nauðsynlegt að hemja æsta grínarann í sjálfum sér svo ekki verði til flippþynnka daginn eftir. Reyndar er orðið ansi langt síðan ég þjáðist af flippþynnku, ég er búin að vera of þreytt til þess að reita af mér mislukkaða brandara. Jæja, þessi bloggfærsla er farin að hljóma eins og ég sé bloggandi úti í bílskúr með snöruna um hálsinn. En nei, ég er bara í ágætis stuði við eldhúsborðið. Til þess að viðhalda stuðinu er ég að spá í að lesa ekki Fréttablaðið. Ég renndi augunum yfir síðuna og við mér blasti fyrirsögn um tvo menn sem köfnuðu í röri. Úff, ég vona að enginn úldinn íslenskur athafnamaður sé byrjaður að skrifa handrit um atburðinn.

miðvikudagur, ágúst 20, 2008
Fjandinn hirði þetta líf... nei djók
Jæja, ætli þessi dagur fari í eitthvað gáfulegra en að drekka kaffi og youtuba sig til vítis? Varla, vaaarlaaaa.
Ég er búin að vera ansi löt við að skrifa og lesa blogg. Í fyrradag fór ég svo rúntinn líkt og samviskusamur heimilislæknir, og las þau blogg sem ég hef tamið mér að lesa. Skyndilega dróg ský fyrir netsólu þegar ég komst að því að fólk er búið að liggja í einhverju kommenta skítkasti. Það eru nú engin tíðindi enda eiga margir erfitt með að átta sig á því að það er líka hægt að móðga, særa og rægja á internetinu eins og í lífinu sjálfu. Engu að síður kom þetta mér á óvart enda virðist ég gleyma því reglulega að það eru bara ekki allir næs hvað þá með fulle fem. Bæði pabbi og DD-unit hafa þurft að þola það undanfarnar vikur að eitthvað lið er að skríða um á netinu og inni á bloggsíðum þeirra og henda rusli og úldnum skoðunum í þau. Ég veit ekki hvort ég sé eitthvað marktækt fyrirbæri en pápi og dd eru sómafólk að mínu mati.
Nú ætla ég mér ekki að vera einhver internet Martin Luther King en geta ekki allir bara verið vinir?
Já seisei, en þá er komið að því að rægja móður mína örlítið, jú mikið rétt, á internetinu. Svo fer ég á eftir á Hagstofuna og skrái eftirfarandi breytingu:
Nafn: Júdas
Starf: Hræsnari
Sérgrein: Svik
Á sunnudaginn ætlaði ég að fara í berjamó með Tinnu vinkonu. En heyrðu nú mig, hvernig endaðir þú þá í Kringlunni með fimm ára barni og tómar tupperware dollur? Jú, ég skal segja þér frá því. Nú, ég hringdi í móður mína fyrir helgi í þeim tilgangi að grennslast fyrir um góð berjatínslusvæði í kringum borgina. Mamma, eins og hennar er von og vísa, óð af stað eins og bremsulaus járnbrautarlest og fór að plotta og plana. Nú líður og bíður og að morgni sunnudags er ég vakin með símtali.
,, Amma sagði að við værum að fara í berjamó!" (barnsrödd í skipandi tón)
,, ööö ha? heyrðu má ég hringja í þig eftir smá stund" (andfúl nývöknuð móðursysturrödd)
Svo hringdi ég í mömmu og hún sór fyrir að hafa ekki kjaftað þessu í barnið. Yeah right, varð innri rödd minni að orði. Svo hringdi ég í Tinnu vinkonu og ætlaði að grennslast fyrir um hvort henni þætti í lagi að berjamóið hefði breyst í míní ættarmót með fjölskyldunni minni.
,, Æi heyrðu, ég er að lakka eldhúsgólfið."
,, Ok allt í góðu." (innri rödd mín bölvaði)
Eftir nokkur símtöl var það ákveðið að ég myndi ná í barnið og keyra suður fyrir fjall eða eitthvað og fara til mömmu og vinkonu hennar. Þegar ég er svo komin upp að dyrum heima hjá systurdóttur minni hringir síminn aftur.
,, Hæ heyrðu ég nenni eiginlega ekki að vera hérna lengur, það er þungbúið og allt lítur út fyrir rigningu. Þessu var spáð (..kjáninn þinn sem lest ekki veðurspána.Innskot: LHH), svo er alltaf betra að fara fyrr af stað (..og þú gætir vanið þig á að vakna fyrr um helgar. Innskot: LHH.)"
Og þarna var ekki aftur snúið. Ég var komin með barn upp á arminn og það er bannað að svíkja börn að mínu mati. Mér datt í hug að bjóða henni í göngutúr um bæinn, jafnvel á róló, í skaðabætur fyrir berjamóinn (hennar mömmu). Þá gellur í hinni ömmu hennar (á spænsku): ,, Af hverju farið þið ekki bara í bíó?"
,,BÍÓ!!" æpir barnið svo glymur í Hallgrímskirkju. Eina myndin sem var í boði og hvorug okkar hafði séð var Wall-e. Hún var sýnd í Kringlunni. ,, Kringluferðin" er svo efni í heilan bækling en ég nenni ómögulega að skrifa um það. Góð saga en við það eitt að rifja þetta upp er ég aftur farin að finna fyrir því sem ég vil kalla: Berjagremju.
Lokakafli berjamósögunnar heitir: ,,Salt í sárið" og er svohljóðandi.
Sími hringir.
Dóttir: Halló
Móðir: Hæ, þetta er mamma.
Dóttir: (með kuldalegri röddu) Já hæ.
Móðir: Heyrðu svo veistu að þú getur komið í kvöld til mín og fengið bláber með rjóma.
Innri rödd dóttur: Thanks.

þriðjudagur, ágúst 05, 2008
já nú er gaman.
Ein ég sit og myndi vera að sauma inni í litlu húsi ef ég væri ekki læst í bakinu. Þar sem allt er álíka sársaukafullt þá get ég alveg eins drullast til þess að blogga eins og hvað annað. Með uppgjöf í augum horfi ég á draslið í kringum mig. Áðan reyndi ég að vaska upp en það var eins og að fá rýting satans í bakið. Helgin var annars drullugóð. AP, sölumaðurinn, grafíski hönnuðurinn, bjöttabarnið, portúgalinn og auðarbróðirinn skemmtum dansandi þvögu á Nasa og það var nú aldeilis gaman. AP, sölumaðurinn og ég ætluðum út í sal að dansa en það gekk nú ekki betur en svo að við vorum gripin og crowd surfuðum óvart. Ég æpti og hló og rassaði óvart systur mína í andlitið. Það sem maður tekur nú upp á á gamals aldri. Kannski er bara ekkert undarlegt að ég sitji hér með þursabitið mitt.
Í gær gerðist sá stórmerkilegi atburður að við AP fórum í kjörbúð. Við kláruðum innkaupin og töltum svo út á bílastæði. Á þessum tímapunkti var AP orðinn ansi fölur og veiklulegur enda nýbúinn að næla sér í einhverja pest. Hann þurfti engu að síður að halda á öllum pokunum út af baklæsingunni minni. Nema hvað, við stöndum fyrir utan bílinn og mér verður litið á herra aríaprins. Svipurinn á andliti hans benti til þess að eitthvað verulega leiðinlegt hefði átt sér stað. ,,Hvað?" hváði ég. ,, Lyklarnir eru læstir inni í bílnum" sagði drengur þá. Þessar ótrúlega vonlausu aðstæður, sjúklingurinn, fatlaða stúlkan og læsti bíllinn, fengu mig til þess að taka veikluleg bakföll af hlátri. Aríaprinsinum var hins vegar ekki skemmt. Þá varð ég ennþá kátari og gat ekki hamið flissköstin. Eftir skammir, meira fliss og nokkrar góðar Mcgyver tillögur frá mér, endaði ævintýrið á því að ég hringdi í tattúveraðan lásasmið og borgaði honum u.þ.b. 50 evrur. Blóðugt en nauðsynlegt. Það eina sem vantaði upp á var þrumuveður og einn góður mávaniðurgangur í augað.
Í dag greiddi ég alla mína reikninga nema einn og á þá eftir 30.000 krónur út mánuðinn. Geri aðrir betur. Ég sé fram á hafragrautsát og vatnsdrykkju. Ég sem ætlaði að baða mig upp úr geitamjólk og kampavíni. Jæja, best að fara að dópa í verkjalyfjum og bólgueyðandi. Adieu.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)