þriðjudagur, október 24, 2006

Mér er skapi næst að hrinda af stað herferðinni: Auðunn Blöndal úr sviðsljósinu.

Ég veit að ég þarf ekki að sjá þáttinn hans og ég vil taka það fram að ég horfi ekki á hann. Það þyrfti einhvers konar Clockwork Orange pyntingaraðferð til þess. Engu að síður hef ég ekki sloppið við auglýsingar sem kynna forheimskandi hermþáttinn ,, Tekinn!".

Það ætti að taka þennan mann og láta gigtveika manneskju plokka hvert eitt og einasta hár úr andlitinu á honum. Þá er ég auðvitað bæði að tala um unibrowið og fáránlega þéttu skeggrótina.

Jább ok, þá er það frá. Seinna mun ég fjalla ítarlega um hvers vegna ég legg fæð á Auðunn og Ashton Kutcher. Fyrst þarf ég að vísu að kafa djúpt í sálarfylgsnum mínum. Þetta hatur er einkennilega djúpstætt og flókið.

3 ummæli:

La profesora sagði...

af hverju hættirðu alltaf um leið og ég er orðin spennt?

Þórdís Gísladóttir sagði...

Ég segi það nú........ég bíð í ofnæmi.

odi hattarinn sagði...

afsakið, ég er ekki hætt ég er bara upptekin.