Veii, airwaves er búið og ég er ennþá með hár á hausnum, ennþá reyklaus, ekki þunn og hef hingað til sloppið við að vera grýtt á Lækjatorgi af reiðum tónleikagestum.
Þetta gekk bara afar vel. Það ein slæma við þetta var að einhver furðufugl á fremsta bekk var með kynfærin á sér út um buxnaklaufina allan tímann. Mig langaði að sparka í draslið en ákvað að gera það ekki. Ég nennti ekki að vera með tættar pungleifar á nýju stígvélunum mínum.
Ekki grunaði mig að það væri hægt að skemmta sér svona vel án þess að vera á eyrunum. Ég tók þá skynsamlegu ákvörðun að sleppa því að drekka yfir hátíðina og sé ekki eftir því. No siree.
Ég sá systur mína og mág og mágkonu og vinkonur mínar og vini úti í sal. Það gladdi mig svo mikið að núna er ég komin með með tár í augun bara af því að rifja það upp. Hnnngn...
Núna er ég að reyna að vekja aríaprinsinn. Að öllum líkindum mun ég leggjast svo lágt að berja sleif í pönnu og æpa: ,, EEEELDUR!"
sunnudagur, október 22, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
þetta var ógeðslega flott og fínt. (þú hefðir alveg getað látið máginn vita af pungsa og hann hefði með glöðu geði sparkað í hann fyrir þig...hehe)
Ég hefði mætt hefði ég vitað að þú værir músíkant. Ef músíkhæfileikarnir eru á kalíberi blogghæfileikanna þá ferðu beint í efsta sæti vinsældarlistans.
takk systir góð og þakka ÞG. Ich bin ein muzikant ja. Hallo
Skrifa ummæli