Hvar ég er? Nú í vinnunni auðvitað Silly Billy. Mér líður eins og ég sé alltaf hérna þrátt fyrir að vinna bara aðra hvora viku.
Vinnan mín felst í því að koma dagblöðum aftur á tölvutækt form. Tvíverknaður, jú mikið rétt.
Á næturnar neyðist ég til þess að lesa blöðin og hef þar af leiðandi aldrei á ævinni verið jafn vel upplýst um umheiminn og einmitt nú. Síðustu mánuði hef ég staðið sjálfa mig á því að mynda mér skoðanir á öllum fjáranum. Einnig hef ég tekið ástfóstri við suma pistlahöfunda á meðan ég legg fæð á aðra. Sum flón ættu ekki að fá að gaspra í fjölmiðlum.
Aríaprinsinn var að kenna mér að nota radioblog.com. Ég held að þessi internetútvarpsstöð sé betri vinur mannsins heldur en hundurinn og gott ef þetta er ekki þarfari þjón en gamli Gráni. Fyrir mitt leyti slagar þetta hátt í að vera nýi besti vinur minn.
Skoh, þú slærð bara inn www.radioblog.com og skrifar uppáhalds tónlistarmanneskjuna þína eða heila hljómsveit og lo and behold playlistar frá ókunnugum birtast í tonnatali og þá geturðu hlustað á það sem þau hafa fram að færa. Mér líður eins og unglingi sem situr þegjandi inni í herbergi hjá nýjum kunningja og mæli ekki orð af vörum á meðan kunninginn spilar uppáhalds plöturnar sínar. Fjör já og þú sleppur við að þurfa að hlusta á leiðinleg lög til þess að vera kurteis. Þarna er maður kóngur í ríki sínu og getur meira að segja æpt: ,, Svei, svona rusl læt ég ekki inn fyrir mínar hljóðhimnur."
Sá aríski er alltaf að gauka að mér nýjum hlutum enda er hann yngri en ég og ennþá áhugasamur um nýja tækni og veröldina í kringum sig.
Ég nálgast, það nýjasta sem hann hefur upp á að bjóða, varlega. Svo hnusa ég af því eins og gamall, úrillur heimilisköttur. ,, WHISKAS? Þetta er ekki soðin ýsa." Svo læt ég þetta bíða í smá tíma en geri svo skyndiárás og nauðga viðkomandi netsíðu/geisladisk/forriti. Rétt í þessu var ég að sjá fyrir mér manneskju að nauðga forriti í bókstaflegum skilningi. Það var mjög disturbing og núna ætla ég að taka mér smá tíma til þess að skamma heilann minn og biðja hann vinsamlegast um að hætta þessum eilífu óumbeðnu slidesmyndasýningum.
Ég á vin sem er með svo hræðilega fjörugt og hraðvirkt ímyndunarafl að það er nóg að segja bara til dæmis ,,afasafi" og hann koðnar næstum niður og fær hvítuna.
Stundum skil ég ekki hvers vegna hann nennir að púkka upp á manneskju sem er það andlega illa stödd að hún getur ekki stillt sig um að tvinna saman andstyggilegum hlutum bara til þess eins að hrella.
Ókey bæ
sunnudagur, janúar 21, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
was?! fimmþúsunddollararáviku! Ég er farin að skrá mig....
gaman að lesa þig mín kæra eins og ávalt ávallt...arg. skítt að sjá ekki meira af þér.
já ég er nebbnilega með dáldið mikið á minni könnu.
Hey, þú ert að græða geðveikt manneskja sjáðu efsta kommentið!
Ég hef ekkert við dollara að gera.
Skrifa ummæli