Í gær tókst mér að fullkomna bitter shrew útlit mitt. Ég keypti mér svartan kerlingatúrban. Barnlausar íslenskar konur eru ekki á hverju strái og þær fáu sem eftir eru ættu endilega að kaupa sér svona höfuðfat. Með þetta á hausnum eru afar litlar líkur á því að börn muni ónáða ykkur á götum úti.
Þar sem ég er gjörn á að endurtaka mig þá er ég næstum handviss um að ég hafi einhvern tímann, í fyrri blogglífum, sagt söguna af því þegar ég reif húfu af ókunnugu barni í Austurstræti og fleygði út á götu. Enn þann dag í dag skil ég ekki hvað kom yfir mig.
Núnú ég var á gangi í Austurstræti þegar tvö börn ákváðu að ónáða mig. Þau létu öllum illum látum, ulluðu, bentu og æptu. Þess má geta að ég er meðalhá, meðalbreið, skolhærð, með gráblá augu, ég haltra ekki og fötin mín eru dökk og óáberandi(fyrir utan nýja túrbaninn minn). Það sem ég er að reyna að segja er: Ég skaga ekki út úr á nokkurn hátt(nema núna með nýja túrbaninn minn). Nema hvað, þarna stóð ég umkringd ullandi börnum og vissi ekki mitt rjúkandi ráð. Fyrsta hugsunin var að sjálfsögðu: ,, Er ég með opna buxnaklauf?". En sú var ekki raunin. Eftir smá stund fengu börnin leið á mér og löbbuðu áfram. Á þeim tímapunkti missti ég vitglóruna. Það síðasta sem ég hugsaði var ,, Þetta skulu þau sko ekki komast upp með." Svo hljóp ég af stað, reif húfuna af öðru barninu, henti henni á götuna, æpti : HAH!, og rölti svo í hægðum mínum inn í KB banka þangað sem för minni var heitið. Börnin göptu en héldu svo í humátt á eftir mér. Þegar ég staðnæmdist fyrir framan gjaldkerann voru þau komin upp að mér. Annað barnanna setti hönd undir kinn og spurði hvers vegna ég hefði rifið af honum húfuna. ,, Bara" svaraði ég að bragði. ,, Langaði þig bara til þess?" spurði þá barnið. Þegar ég jánkaði því þá sagði barnið ókey og svo yfirgáfu þau bankann.
Ég get engar skýringar gefið á athæfi mínu. Impulsive doesn´t quite cover it.
föstudagur, febrúar 02, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Til hamingju með daginn Lóa mín! (Það er 4. feb. þegar þetta er ritað, veit ekki hvort það komi fram)
Takk fyrir það. Mér þykir það öldungis ótrúlegt að þú skulir alltaf muna eftir afmælinu mínu Tinna mín. Ótrúlega gleðilegt það er að segja.
Þó það nú væri mín kæra.
Skrifa ummæli