fimmtudagur, ágúst 16, 2007

þreyttur litill kall

Æhh hvað ég er þreytt. Svo er ég líka dottin í það. Já sko ég gat ekki hamið mig lengur og festi kaup á nýjustu Harry Potter. Ég var sko búin að spara hana svo ég kæmi öllu í verk sem ég þarf að gera. Tveggja blaðsíðna to do listinn minn er að gera mig gráhærða, magasára og viðskotailla. En jú eins og nördafíkli sæmir get ég bara ekki gert neitt annað en að sitja með nefið ofan í Harry og lesa og lesa. Á föstudaginn förum við til Danmerkur enn einu sinni. Þar munum við leika listir okkar í danska ríkisútvarpshúsinu.

Sko til marks um hversu skelfilegt stressið mitt er orðið vil ég benda á nokkur einkenni sem ég þjáist af:

Ég er byrjuð að fá grátt hár
Ég er með stanslausan niðurgang
Ég er ekki búin að fara á túr síðan í júní (já ég er búin að tékka á hinu)
Ég sef illa
Ég gnísti tönnum þegar ég sef
Ég er með króníska vöðvabólgu
Ég er skapstygg

Úff segi ég nú bara.

7 ummæli:

La profesora sagði...

jedúddamía segi ég nú bara litli karl. eða eins og emil myndi segja: take a chill pill.
ég skil samt alveg að þú skulir vera stressuð. þú munt samt fatta um leið og þú kemur út að svona mikið stress var óþarfi.
ég get minnkað stresseinkennalistann þinn aðeins ef þú vilt... sko, ég er sallaróleg en:
ég er með mörg grá hár
ég kúka reyndar eðlilega en óeðlilega oft
ég er ekki búin að fara á túr í 2 ár
ég sef ágætlega en er alltaf syfjuð
ég veit ekkert hvað ég geri þegar ég sef
ég er með króníska vöðvabólgu
ég er mmm.... ekki skapstygg nema þegar ég er þunn.

odi hattarinn sagði...

Takk fyrir. Ég skal reyna að hafa þetta í huga.

Tinna Kirsuber sagði...

Gangi þér vel Lóa mín.

odi hattarinn sagði...

TAkk fyrir

Nafnlaus sagði...

Hvernig væri nú að blogga um Ameríku?
bíðum spennt hérna - við sem vorum að uppgötva bloggið þitt :)
Bryndís

Nafnlaus sagði...

leitt að heyra með niðurganginn og tanngnísturnar í svefni. það má samt gleðja sig við að það gerist ekki samtímis. endilega bloggaðu um amríska hætti.

Sveinbjorn sagði...

Er ekkert búið að gerast í ameríku?