mánudagur, júlí 30, 2007

coming to america

Bráðum slæst ég í hópinn með Beckham hjónunum og held til Ameríku. Ég ætla að horfa á Frelsisstyttuna með tárvotum augum og þurrka hvarmana með skítugu slæðunni minni. Svo mun ég að öllum líkindum brosa mildilega og hvísla: ,, Ahmerríkahh".

Á fimmtudaginn á ég pantaðan tíma hjá bandaríska sendiráðinu. Að sjálfsögðu er ég á nálum um að vera með alla rétta pappíra svo ég verði ekki send öfug heim. Í dag fór ég á ljósmyndastofu og fékk ferkantaða passamynd af sjálfri mér þar sem ég horfi beint fram, með eyrun úti og brosi án þess að það sjáist í tennurnar á mér. Ég þarf varla að taka það fram að myndin er verulega ljót og ef ég eignast börn þá munu þau ekki fá að sjá hana svo þau fari ekki að kvíða því að einn daginn munu þau líta svona út. En þetta var nú útúrdúr.

Um daginn var ég stödd í húsi á Laugaveginum sem verður brátt að víkja fyrir verslunarmiðstöð. Þá datt mér í hug að það gæti verið skemmtilegt ef Íþróttaálfurinn myndi hætta að atast í feitum börnum og einbeitti sér frekar af jafn miklum krafti að því að vernda Laugaveginn. Í dag finnst mér þetta ekkert voðalega góð hugmynd.

Ef einhvern þarna úti langar til þess að sækja um skóla í Bandaríkjunum þá er ég tilbúin til þess að svara alls konar spurningum um hvernig á að bera sig að. Eftir á að hyggja var þetta ekki svo flókið. Þetta lítur bara út fyrir það í fyrstu þegar maður veit ekkert hvernig maður á að snúa sér.

4 ummæli:

La profesora sagði...

ég er svo stolt af þér... sniff...

odi hattarinn sagði...

Takk fyrir elsku Maja mín, var ég búin að segja þér hvað ég sakna þín. Ég ætla líka að gera það á þínu bloggi til öryggis.

Já ég er minna fuck up en ég bjóst við, takk fyrir alla hjálpina.

Egga-la sagði...

Hæ Góða ferð til Amríku. Bið að heilsa Torí og Dabba!

kveðja frá Noregi
Helga Dís

odi hattarinn sagði...

Hæ, þakka þér kærlega fyrir. Hver eru Torí og Dabbi annars?