sunnudagur, október 28, 2007

Áfengispróf!

Jæja, þá er Gummi litli grís búinn að raða í sig morgunmatnum. Mjög ánægjuleg stund með kjúkling verð ég að segja.

Þegar ég opnaði svo tölvupóstinn minn þá blasti við mér enn eitt glatað bréf frá skólanum mínum. Ég þurfti að taka áfengisprófið aftur. Dear Loa Hlin we have been informed that you have not completed your follow-up alcohol test on e-CHUG. We encourage you to do so immediately.
Samkvæmt því prófi er mjög óeðlilegt fyrir tuttugu og átta ára manneskju að drekka tvö vínglös á viku. Ég býst fastlega við því að frakkar, ítalir eða spánverjar hafi ekki samið þetta próf og eigi afar erfitt með að skilja ásakanirnar sem fylgja eftir prófið. Þau ýjuðu að því að ég væri alkóhólisti og ég sem laug og mildaði. Já og tók einhver eftir nafninu á fyrirækinu: Eeee- CHUG, CHUG, CHUG, CHUGGG!!
Jámm en tölum dáldið um eldsvoða. Það er skrítin lykt í loftinu, brunaliðsbíllinn kom æðandi að rétt í þessu og ofmannað slökkvilið er að rölta upp og niður götuna. Ætli einhver hafi kveikt í Colt maríneruðu beikoni hérna í hverfinu? Nei, maður spyr sig bara. Þetta hef ég upp úr kvikmyndinni Juice með Tupac ef einhver er að velta því fyrir sér.

Áðan hringdi Jason vinur minn. Hann notar mig sem heimalærdómsuppflettirit. Að þessu sinni var ég fegin vegna þess að, og nú mega sálfræðingar taka upp skrifblokkirnar sínar, ég var í þann mund að velta mér og snúa vegna hræðilegrar martraðar. Ég lá við hliðina á norskum frænda mínum inni í tjaldi í helli og við vorum að ræða að það væri ekkert mál að plata einhvern lækni til þess eyða barninu þar sem við værum svona rosalega skyld og hann myndi skilja ástæðuna(förum ekki nánar út í það). Ekki nóg með það þá var ég nýbúin að horfa á hommaklámmynd þar sem þessi frændi minn lék aðalhlutverkið á móti Eggerti Þorleifssyni. (soundeffect: blýantur brotnar á skrifblokk sálfræðings)

Ég skil nú ekki tilganginn með því að vera með undirvitund þegar hún virðist vera á móti manni. Niður með fjandsamlegar undirvitundir. Hvað væri að því að vera með vinalega undirvitund sem segir manni hlýja og gáfulega hluti. Hún gæti til dæmis hvíslað að manni tilgangi lífsins(ef ég gef mér það að tilgangur lífsins sé ekki að hafa mök við tvemenninga sína og horfa á klámmyndir með Eggerti Þorleifssyni.

Jæja, kannski er ég bara alkóhólisti með sóðalegar hugsanir, bældar hvatir og kynferðislanganir gagnvart ættingjum mínum.
Væri það ekki smart? Næstum því jafn smart og þessi bloggfærsla.

6 ummæli:

Þórdís Gísladóttir sagði...

Mér finnst þetta áfengispróf áhugavert. Ef Háskóli Íslands tæki það upp meðal starfsmanna og nemenda myndu örugglega 2/3 kolfalla og fá alkohólistaskírteinið sent í pósti.

odi hattarinn sagði...

hahaha, kannski væri sniðugt að láta fólkið vita svo það sé ekki að aulast hingað vestur eftir.

Nafnlaus sagði...

lúílúííí..lúílúí...lúílúí, lúílúí, lúílúí

gettu hvaða lag þetta er?

odi hattarinn sagði...

,, Mitt dulda sjálf" med Dabba og dægurflugunum?

Nafnlaus sagði...

Ókei, ég skal gefa þér vísbendingu, þetta er lag úr hollívúdd stríðsbíómynd
(Megi verkfall hollívúdd skrifara standa í 1000 ár!!!!!!)

odi hattarinn sagði...

já, ég stend á hollywood gati enda held ég að mér verði ekki boðið að taka þátt í popp- eða kontrapunkti fyrr en kólna myndi í víti. Eru Hollywood skrifarar í verkfalli. Detti mér nú allar dauðar.