föstudagur, september 18, 2009

elevenandtwelfty.

Hver getur elskað fjörutíuogníu ára gamlan mann? Ég en ekki ef það er einhver úr Stuðmönnum. Ekki að þeir séu eitthvað nálægt 49 árum, allt nýja fólkið er í kringum 25 ára. Valgeir minn Guðjónsson er fjarri góðu gamni. Held ég, óstaðfestar heimildir þetta eru. Mat eingöngu byggt á því sem ég held.

Mig langar að sjá heimlichamyndir og þannig lagað á RIFF. Ég hlakka til þegar ég get farið að stunda kvikmyndahátíðir eins og óð manneskja. Núna er ég of blönk/óskipulögð/tímabundin. Einhver af þessum afsökunum ætti að duga.

Ég er á leiðinni í sund í hellaða sundbolnum mínu. Hann er smekklegur en mjög ópraktískur. Á eftir ætlum við systur að þralla upp í Breiðholt og labba göngustíginn okkar. Hlakka ég til, skemmta mér ég mun.

Spakmæli dagsins eru: Áráttuhegðun er svona allt í lagi bara, eiginlega kannski í hófi samt. Hvað veit ég?

Engin ummæli: