Í gær var ég að ræða ýmis mál við vinkonu mína. M.a. um námsmennina sem voru á atvinnuleysisbótum á meðan þau voru í námi. Mér varð hugsað til Gísla Marteins og hvernig hann lá á kerfinu þegar hann var í námi með því að þiggja laun frá borginni eða ríkinu á meðan. Hann hætti því nú reyndar en bara eftir að það var gagnrýnt. Sem sýnir augljóslega að honum hafi fundist þetta vera í góðu lagi og líklega fundist hann sjálfur vera sniðugur og hafa komið sér vel fyrir í lífinu. Ég býst við að námsmennirnir hafi hugsað á svipuðum nótum.
Það er sumsé hægt að liggja á kerfinu í nokkrum flokkum. a) Með því að ræna frá skattborgurum b) Með því að ræna frá skattborgurum.
Gísli var bara aðeins flottari á því. Ég sé engan mun. Það er alveg jafn glatað að ræna núðlusúpu og það er að ræna parmaskinku.
Það var nú ekki ætlun mín að fara að tala um eitthvað tengt þjóðlífinu hvað þá fréttum liðinna mánuða. Á hverjum degi keppi ég ýmist við að loka augunum í dásamlegri afneitun fyrir öllu eða skipuleggja flóttann frá þessu 300.000 manna fíaskói.
En snúum okkur að afurðum:
Engin ummæli:
Skrifa ummæli