mánudagur, desember 18, 2006

Ég hef vakið athygli mína á að ég tala óvenju mikið um þarmastarfsemi mína. Tjah, það mætti næstum því segja að yfirlýsingagleði mín í sambandi við klósettferðir og kúk sé yfirþyrmandi og verulega þreytandi til lengdar. Guði sé lof að ég eigi ekki afkvæmi sem þurfa að skammast sín fyrir mig.
,, Mamma, nennirðu að hætta að tala um rassinn og kúkinn þinn?"
,,Al-drei."

En að áhugaverðari efnum, ég veit ekki hvort ég sé svona þurr á höndunum út af óeðlilega tíðum handþvotti síðustu daga eða vegna ofþurrks. Andskotinn, þarna var ég að reyna að brydda upp á nýju umræðuefni en varð fyrir því óheppilega atviki að beinast aftur inn á sömu braut. Fyrir þá sem heima sitjið: handþvottur og þurrkur eru fylgifiskar niðurgangs.

2 ummæli:

La profesora sagði...

prump.....hehehe....

kaninka sagði...

Mér fannst veikindin nú ekki hafa stoppað þig á þessum snilldar tónleikum ykkar, hvað þá drepið þig! Tónleikarnir hreinlega lýstu upp dimmasta dag ársins. Lögin ykkar hringlaðu í hausnum á mér öll jólin og designated driver átti mjög vel við meðan ég keyrði út pakka á aðfangadag.