Nú sit ég í sófa og teikna Jóhönnu af Örk. Það er stuð. Áður fyrr var ég afar fælin við að teikna hesta en núna finnst mér fátt skemmtilegra. Aríaprinsinn liggur á gólfinu og er að tala við mig og reyna að fá mig til þess að gera eitthvað annað en að læra. En ég veit betur en að láta freistast. Ég þarf nefnilega að gera nokkra hluti:
%Teikna sögubók
%Klára bók fyrir design for illustrators
%sauma þrjá kalla og búa til kassa utan um fimm kalla
%mála tvö málverk
%teikna átta myndir
%teikna teikningu sem er tíu fet á lengd en um það bil eitt á hæð
%skrifa litla ritgerð(5 bls)
Og þannig er það nú. Hægri hönd mín er ótryggð fyrir skakkaföllum by the way. Ég verð að byrja að læra að teikna með vinstri eða tánum. Tánum mínum.
Svo koma jólin bráðum. Ég hef eiginlega ekki tíma til þess að halda þau. Ooooog já og ekkert meira. Eða jú, ég á nýja kápu. Merkilegra var það nú ekki. Ætli ég verði ekki bara að tala um eitthvað plebbalegt.
Ég veit ekki hvort ég hafi sagt ykkur frá Frægðaríinu hérna á horninu. við erum sko búin að sjá þrjár stjörnur í hverfisbakaríinu.
Númer eitt er lélegast og sá eini sem ég er búin að sjá: Adrian Grenier, hann er það lélegur að ég þarf væntanlega að útskýra hver hann er. Hann er sko kærastinn í The Devil wears Prada og í aðalhlutverki í Entourage þáttunum sem ég horfi nú reyndar ekki á.
Númer tvö er alvöru stjarna: og hana þarf ekki að kynna, Maggie Gyllenhal
Númer þrjú er best: Malik Yoba úr Law and order og ekki má gleyma stórmyndinni Cool Runnings.
,, Hvar eru ilmsöltin?" æpa hinir hrifnæmu og dyggu blogglesarar í aðvífandi aðsvifi.
Bara að ég hefði nú frá einverju að segja öðru en hversu mikið ég held upp á 4B blýanta og hvað mér finnast HB blýantar vera mikill óþarfi. Svo hef ég aldrei skilið hnoðstrokleður og persónulega finnast mér nú bara Boxy vera best og hvítu Viggóstrokleðrin koma þar fast á eftir. Svo er nú varla hægt að blogga án þess að minnast á hvað hvítur pappír er miklu verri en offwhite. Svona hluti er ég að hugsa á hverjum einasta helvítis degi og líður eins og bölvuðu nördi.
mánudagur, desember 10, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Gott er nú að heyra að Jóhanna okkar er efst á blaði. Við NMS-fólk og aðrir velunnarar erum að springa af forvitni.
Gangi þér allt í hagi, Þorsteinn
ég er velunnari líka.
maja
Cool Runnings
Vel Unnings
Ég sé munstur.
Annars finnst mér þú gríðarlega og hræðilega bissí. Ertu búin að vera dugleg allan tíman eða ertu búnað safna þessu upp? Mér fannst þú alltaf verað vinna. Og fara útí búð í náttfötum. Og teikna ó svo fallegt.
Og spilaðu jólalög og kaufftu einhverja jólaseríu (bara einhverja, það er svo fínt að horfá svoleiðis á næturnar ef þú vaknar og þarftað pissa eða vilt bara glápa smá á tilfinningabjarmann). Og kaupiði piparkökur, það eru til danskar svoleis í einhverjum búðum. Og svo getiði kaufft svona mexíkanskt Goya malt og blandað því útí Fanta eða eitthvað. Malt og Fantesín, bara mínus sín.
Og...og...kaupa hangikjötsilmkerti. (oj, en samt vá!)
Og já, þetta voru leiðbeiningar tilað komast í jólafílingz.
ég mæli nú bara með entourage. ég tók þættina í gegn um daginn hraðar en árni tók alias.
núnú, ég sem gaf þeim aldrei séns. En heyrðu heldurðu að Alan Cummings úr stórmyndinni Spy Kids hafi ekki bara mætt í teiknitímann minn og skoðað draslið okkar og þá er ég ekki að tala um kynfæri.
Halli minn þú ert nú meiri dúllan og grallarinn. Já ég er búin að vera að vinna allan tímann en kennararnir héldu bara áfram að hlaða á okkur verkefnum fram í rauðan dauðann.
Jújú Þorsteinn ég er hér að teikna, með hléum þó því skólinn er ekki búinn fyrr en 21. des og þau eru nú frekar rugluð þarna í skólanum. Þið fáið að sjá þetta von bráðar.
og maja ég er velunnari þinn.
Skrifa ummæli