Ég var að koma úr teboði. Mjög indælt. Við sátum og drukkum te og spiluðum Scrabble. Ég vildi óska þess að ég væri ellilífeyrisþegi. Það hljómar ekkert smá næs. Dagurinn minn myndi vera einhvern veginn svona:
Vakna klukkan 7
Drekka kaffi eða te og lesa blöðin í svona klukkutíma
Rölta í sund
Hanga í sundi í svona 4 tíma
Fara heim og fá mér hádegismat
Baka
Bjóða einhverjum í kaffi
Spila, slúðra og spjalla í nokkra tíma
Fara á veitingahús
Fara heim og lesa
Glápa á sjónvarpið
Sofa
Repeat.
laugardagur, mars 01, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
hellúúú...
hitti þig í gær- eins og þú leist út í æsku. Ég fékk þvílíkt flashback og langaði bara til að knúsa þessa litlu krúsídúllu sem stóð fyrir framan mig.
Annars fór ég á opnunina á Santa Maria með systur minni í gær og það var frábært að hitta alla fjölskylduna þína og rifja upp afmælin í Þrastarhólunum.
Bið að heilsa,
kv.
Þrastarhólapían (Inga)
En skemmtilegt. Já hittirðu mini me. Dáldið fyndið að systir mín hafi eignast barn sem er svona nauðalíkt mér.
Var ekki gaman á opnuninni? Mig langaði svo að vera þarna. Ég fæ bara að sjá staðinn seinna.
Lóa
já þú misstir af miklu mín kæra. í staðin tók ég bara með mér barnið sem ég lét vísindamanninn á klóntilraunastofunni búa til úr dna sem ég fann á hárburstanum þínum einu sinni og lét koma fyrir í leginu á mér.
hún skemmti sér vel í þinn stað.
já þú misstir af miklu mín kæra. í staðin tók ég bara með mér barnið sem ég lét vísindamanninn á klóntilraunastofunni búa til úr dna sem ég fann á hárburstanum þínum einu sinni og lét koma fyrir í leginu á mér.
hún skemmti sér vel í þinn stað.
úps
Ég stefni hratt í ellilífeyrisþegann og get vart beðið eftir að eyða með þér síðustu árunum, við erum með svipaða stefnu í plönunum. Sjáumst í Vesturbæjarlauginni 2040!
Æsa
Guði sé lof fyrir samræmd plön. Ég er farin að hlakka til.
Skrifa ummæli