Hvernig snýr maður þessu helvíti? En já þarna er ég með helvítis hattinn. Ef ég væri hrifin af Vestmannaeyjum og fylleríi með Árna Johnsen þá myndi ég ábyggilega kaupa mér hattinn.
Spurning hvort ég geri það að prinsipp máli að fara aldrei til Vestmannaeyja fyrst ég er ekki ennþá búin að fara þangað.
4 ummæli:
það er orðið mjög fínt á blogginu þínu.
Þakka þér fyrir. Ég gerði fátt annað í gær en að spjalla við þig og vesenast í blobbinu.
Afar lekkert höfuðfat. Ég vona að þú verðir með hann dagsdaglega. Í leikhúsi og svona.
Ég vona að Þjóðleikhúsið sýni einhvern grískan harmleik á næstunni. Þá get ég mætt með skrímslið á hausnum og sest fyrir framan kurteisa gamla konu. Kannski ég taki líka með mér stóran snakk poka. Beikon bugður.
Skrifa ummæli