sunnudagur, maí 11, 2008

abbsakið

jæja þá er ég bara sest við tölvuna. Tveir dagar eftir af skólanum og ég á eftir að mála heilt málverk, prenta fimm myndir og gera eitt stykki vídeó.

Talandi um vídeó Ég var að föndra vídeó með Árna mæn.

Nennir einhver að segja mér hvernig á að láta youtube videó yfir á bloggið mitt. Ég hef ekki réttan litningafjölda fyrir þetta helvíti.

Núna er ég með gúlann fullan af jórturleðri. A.P.(aríaprinsinn mun heita þetta hér eftir. Ef þú ert með lélegt minni þá er núna rétti tíminn til þess að hripa þetta niður.) A.P. þreytist seint á því að tala um tyggjósiði mína.
,, Hvað ertu með mörg tyggjó uppí þér núna?" glymur í drengnum. ,, Tvö." lýg ég mjóróma og slefa út um annað munnvikið. ,, Ég trúi þér ekki" segir sjálfskipaði einkaspæjarinn.

Tyggjó er eins og popp fyrir mér. Eitt styk er glatað, tvö er ekkert spes, þrjú er jújú svosem í lagi, fjögur fínt, fimm styk ídeal og þar fram eftir götunum þar til ég get ekki lokað munninum.
Ég er að spá í að vaxa aldrei upp úr þessu. Mér finnst hvort eð er ekkert fullorðinslegt við það að maula á einhverju tyggigúmmíi í tíma og ótíma. Best að fara bara alla leið í þessu máli.

Fyrst ég er að ræða um það sem fullorðið er þá er skemmst frá því að segja að foreldrar vorir guðuðu hér á dyrnar fyrir ekki svo löngu síðan. Blessunin stukku svo upp í rútu í Kínahverfinu og munu ekki láta sjá sig hér fyrr en þann fjórtánda. Mamma fór í keng í leigubílnum á leiðinni frá flugvellinum. Bílstjórinn var glanni og svo ákvað hún að hann myndi nú örugglega ekki rata og tók hún sig því til og las upp öll götunöfnin í um það bil tvo kílómetra eins og það myndi hjálpa einhverjum í heiminum. Á meðan sat pabbi og ataðist í snertiskjánum sem var á bakhlið bílstjórasætisins.

Daginn eftir vaknaði ég klukkan níu. Þegar ég kom inn í stofu þá sátu gömlu hjónin fullklædd í sófanum og vildu fara. Guð má vita hversu lengi þau höfðu setið þarna.

Ég ætla að fara að undirbúa mig andlega fyrir endurkomu þeirra eða bara taka nógu mikið af sljóvgandi ofnæmislyfjum.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Svona geriru YouTube:

Farðu t.d. á þetta sniðuga vídjó.

Hægra megin á síðunni er allskonar infó um vídjóið, og þar stendur URL: og Embed: (ef þú sérð ekki Embed skaltu ýta á "More")

"URL:" er slóðin á síðuna sem þú ert á
"Embed:" er kóðinn sem þú vilt

Svo kóperaru bara allan kóðann í Embed-dálknum og peistar hann inní færsluna þína. Masjík!

p.s. ég er bara að skoða bloggið þitt afþví að ég er að dreeeeeepast úr stretzi!

La profesora sagði...

sé alveg fyrir mér senuna í leigubílnum...hehe...

odi hattarinn sagði...

Takk Haraldur. Hér með ertu búinn að ráða þig sem liðveisluna mína. TIL EILÍFÐARNÓNS MÚHAHAHA. Þú þarft samt ekki að skeina eða neitt ógeð. Bara viðra mig í Hljómskálagarðinum og hjálpa mér á netinu.

Já Maja, ,, Sena" er einmitt rétta orðið yfir þetta atvik. Ég á von á fleiri senum þegar þau snúa aftur.

Jonina de la Rosa sagði...

hahahaha mér finnst foreldrar þín óskaplega fyndin nú þegar!! plís segðu okkur meira :)