laugardagur, maí 17, 2008

Trébert og fleira svona eitthvað.

Góðir hálsar. Mér til mikillar gleði er allt um garð gengið. Eða sko skólinn já. Áðan fór ég á inn á kerfið sem heitir myschool og tékkaði á einkunnunum mínum. Ég þjáist víst ekki af greindarskorti samkvæmt tölunum þar. Lokaverkefnið í leikfangaáfanganum var að documenta leikfangið.
A.P. hjálpaði mér svo mikið að það fossblæddi úr nefinu á honum. Grín, ég veit ekkert af hverju ég sagði þetta. En þessi indælisdrengur vakti með mér og tók upp og klippti og stóð sig eins og hetjan sem ég er víst ekki. Hér er það.





Þetta er hann trébert. Við gerðum líka vídeó sem er einhverskonar viðtal við mig sem lúðalegt gáfumenni. Það heitir "Inside Treebert" með undirtitlinum "an interview with a genius". Ég fattaði ekki hvað þetta var hellað fyrr en daginn eftir. Þá trúði ég því ekki að við höfðum í alvörunni sett þetta á netið. Ef einhver hefur áhuga á því að sjá það þá verður sá hinn sami að finna það.

Heldurðu ekki bara að foreldrar mínir séu búnir að hegða sér eins og englar. Ég hef bara ekkert um þau að segja. Í gær fórum við á Guggenheim og heimsóttum litlu Guggenheimana. Þeir voru hressir. Svo var líka sýning eftir kínverskan mann sem heitir..... öhhhh ég gæti gúglað það en heilinn minn verður að fá að spreyta sig ræfillinn...... Cai... Quong....We....nei ég man það ekki. Augnablik. Já sýningin hans Cai Guo Qiang. Jebbbb.


Kaffivélin er eitthvað að reyna að fá mig yfir til sín. Ég get svarið fyrir það að hún sagði nafnið mitt í alvörunni. Með draugalegri uppáhellingarröddu.
En hvað veit ég, sótugi minningaþjófurinn?

8 ummæli:

La profesora sagði...

ég er hætt að tala við mömmu hér með.
við lotta fíluðum trébert bæ ðe vei. og núna ætlar lotta að skrifa til þín:
lotta loa arni amma afi emil

Jonina de la Rosa sagði...

Trébert er ÆÐI !! líka þegar hann grætur... greyið..

Jonina de la Rosa sagði...

Trébert er ÆÐI !! líka þegar hann grætur... greyið..

odi hattarinn sagði...

Þökk fyrir. Trébert biður að heilsa ykkur öllum.

Upphaflega var hann með eitt lauf og hann átti að gráta þegar laufið var tekið af honum. En ég fékk vitlausan rofa hjá kennaranum og hann fór alltaf að gráta þegar laufið var á honum þannig að ég þurfti að breyta laufinu í exi.

Hehe, ég hélt að þú værir búin að læra af reynslunni ungfrú María. Mamma getur ekki haldið neinu út af fyrir sig. Þér var nú bara nær að kalla mig minningaþjóf.

Nafnlaus sagði...

Hahahaaaaa!!!

Gráturinn er það fyndnasta sem ég hef heeeeyyyyyyrt. Er búnað hlusta aftur og aftur og aftur og aftur og aftur...!!!

Kristín sagði...

Þetta er æði, til hamingju.

odi hattarinn sagði...

Takk. Já og gáfumennið ég fékk A í öllu. Þegar ég kem heim þá vil ég vera kölluð prófessor Lóa.

Kristín sagði...

Ég skal alltaf muna að kalla þig prófessor, prófessor.