laugardagur, apríl 26, 2008

of næm


Já nú er vor í lofti og það þýðir bara eitt. Ónæmiskerfi mitt gerir uppreisn og líkami minn fer í varnarstöðu. Mig klæjar í nefið og augun og hálsinn og eyrun og húðina í andlitinu og ekki nóg með það þá lekur úr augunum á mér og saltvatnið úr augunum veldur sviða í andlitinu á mér. Ekki má gleyma hnerrunum. Ég hnerra um það bil fjórtán sinnum í röð á fimm mínútna fresti. Þetta samsull er eitt stórt áreiti og er ég því ansi skapstygg um þessar mundir. Ef ofnæminu myndu fylgja einhverjir ofurkraftar þá væri ég sáttari við fyrirkomulagið. Enn sem komið er hef ég ekki fundið neina jákvæða punkta, ég er bara að drepast úr þreytu og ergelsi. Á hverjum degi tek ég risastórar ofnæmistöflur og þær virðast ekki virka fullkomlega. Þetta er svo fáránlegt af því að ofnæmi er gjörsamlega tilgangslaust. Þetta er ekki sjúkdómur og gerir heldur ekki gagn. Ég sé þetta bara sem einhverja stæla. Æ hvað tilveran getur verið úldið drasl. Ef einhvern sárvantar manneskju til þess að vorkenna þá skal ég með glöðu geði taka það að mér að þiggja vorkunnina.

Nú hefi ég í hyggju að birta ofnæmislistann minn í heild sinni:

Frjókorn
Gras
Birkitré
Epli
Plómur
Perur
Kirsuber
Kiwi
Valhnetur
Heslihnetur
Kastaníuhnetur
Möndlur
Hveiti
Sinnep
Þorskur
Hundar

Stuð.

Jæja, en hér koma jákvæðar fréttir. Við þurfum ekki að borga leigu fyrir maí. Þar spara ég mér 103.000 krónur. Auk þess er ég að leggja lokahönd á teikningar fyrir Námsgagnastofnun. Þá get ég einbeitt mér að því að klára lokaverkefnin fyrir skólann. Talandi um skólann, þrjár vikur eftir. Júhúú. Djöfull er ég fegin.

17 ummæli:

Kristín sagði...

Ég vorkenni þér heilmikið alveg. Passar alveg inn í sjálfsvorkunnarkastið mitt, léttir jafnvel á því.

Nafnlaus sagði...

Ég er búinn að vorkenna þér mikið síðustu daga, og fá zamwyzgupyd yfir að gleyma og stinga uppá hveitimat.

Líka búinn að vorkenna mér smá fyrir að hafa aldrei náð mynd af þér hnerrandi.

En ertu í alvöru með ofnæmi fyrir ósýnilegu og stuði?

odi hattarinn sagði...

Áhugavert, ekki datt mér í hug að ég gæti hjálpað einhverjum í sjálfsvorkunnarkastinu mínu. Af hverju ert þú í sjálfsvorkunnarkasti?

hahahahahahalli, ég vorkenni þér fyrir að hafa ekki náð hnerri mynd. þú þarft ekki að hafa zamwyzgupyd. Ég þarf bara að kaupa mér nesti.

Kristín sagði...

Ég er raddlaus og hálflasin að lesa fyrir próf og vorkenni mér ógeðslega mikið.

La profesora sagði...

ég vorkenni ykkur báðum hrikalega mikið. ekki þér þó halli, þú virðist hafa það fínt.
mér líður strax betur yfir því að vera bara þreytt og hafa engan tíma fyrir sjálfa mig. hah og svo eru enn ekki komin frjókorn á íslandi svo að ég er enn ó-of-næm.
djöfull er ofnæmislistinn þinn annars langur louie. mæ ó mæ. vorkunn in da house. einkunn, miskunn og forkunn líka.

Nafnlaus sagði...

ég vorkenni þér fullt. ég fæ oft kláða í efri góminn og alveg aftur í háls útaf ilmvötnum. var einu sinni að vinna með konu á rúv sem baðaði sig í einhverju þungu á hverjum morgni. mig svíður í nefið við tilhugsunina.

Nafnlaus sagði...

Mér finnst að Þorgrímur eigi að skera upp herör gegn ilmvatnsnotkun núna þegar búið er að úthýsa reykingafólki. Ilmvatnsstybba er ógeð.

Takk fyrir að vorkenna mér Hryssa. Ég þakka fyrir ofnæmisleysi mitt á hverjum degi, allt of margir sem þjást af slíku ullabjakki. Kristín í París.

odi hattarinn sagði...

æ já, svo eru það ilmvötnin. Ég er sem betur fer ekki með ofnæmi fyrir þeim. Láttu þér batna Kristín og Maja, ég mun koma heim og vorkenna þér þegar frjókornin láta á sér kræla. Þá getum við hnerrað saman og nuddað á okkur nefin þar til þau ískra.

Nafnlaus sagði...

Og ég tek myndir.

Sveinbjorn sagði...

Hér er smá vorkun handa þér.

Nafnlaus sagði...

Bættu við n-i, og það er díll!

Nafnlaus sagði...

Já, þér er sannarlega vorkun. En passaðu samt þennan lista, það er... ef þú átt einhverja óvini.

Nafnlaus sagði...

Jói vorkennir Lóu

Nafnlaus sagði...

Svanhvít vorkennir Lóu ógurlega....en hahaha ÞORSKUR hahaha..fyrirgefðu þetta var ónærgætið af mér.

odi hattarinn sagði...

hehehe, ja thorskur. Eg thakka ollum fyrir yndislega seidandi vorkunn. hahahaha oh miskunn.


eg mun blogga um leid og eg er haett ad vera stressud og ofnaem, ja svona ef einhver hefur ahuga a ad vita thad. heh.

Jonina de la Rosa sagði...

vá ég vorkenni þér rosalega mikið mikið!!!

Epli
Plómur
Perur
Kirsuber
Kiwi
Valhnetur
Heslihnetur
Kastaníuhnetur
Möndlur

Þetta er svo mikið!!!

hvernig geturu lifað! ég vorkenni þér sko sérstaklega mikið !

Nafnlaus sagði...

Mínus þorskurinn, þá er þetta er uppskrift að gómsætu salati.

Og ég er enn með samviskubit síðan ég gerði grín að þér í gær.