miðvikudagur, júní 04, 2008

Verði ljós.

Kæru félagar, ég er komin heim.

Heimkoma mín samanstendur af um það bil átta þúsund símtölum, loforðum og kaffihittingum. Núna er ég byrjuð að vinna hjá systur og mági á margrómuðum veitingastað þerira. Kvöldið í kvöld var hreinræktaður hryllingur og ég er verulega farin að íhuga að útrýma miðaldra konum. Nei, spaug. Þær eru fínar svo lengi sem þær hópa sig ekki saman. Ég og A.P. erum að þeytast á milli heimila og ég hlakka gífurlega mikið til að eignast almennilegt heimili. Ekki það að ég muni gera eitthvað merkilegt á því heimili. Mig langar bara að vita hvar ég muni höfði mínu halla næstu vikurnar. Djöfull er leigumarkaðurinn annars svívirðilegur. Það mætti halda að Reykjavík sé áhugaverðari borg en New York. Ekki skil ég neitt í fólki sem kemur héðan frá austur evrópu. Íbúðaverðið þar er fimmaurabrandari miðað við nauðungaruppboðin hér. Þess má geta að ég las nauðungaruppboð sem nauðgunaruppboð þar til ég var um það bil seytján vetra. Skekkt veruleika skyn mitt þarf því engan að undra.

Stundum minnir lífið mig á ljóðlínur eftir Stæla Steinarr.

og þó þú tapir það gerir ekkert til
það var víst vitlaust gefið

En þetta eru líklegast meðvirkasta ljóð sem ég veit um. Heyrðu já... ég er búin að drekka aðeins of mikið hvítavín. Strax farin að vitna í fokking ljóð. Djöfulsins Íslendingur getur maður verið.

3 ummæli:

joso sagði...

velkomin heim Lóa, ég kanski rekst á þig á förnum vegi í sumar. Ég er búin að horfa nokkrum sinnum á treebert og finnst hann frábær, meira að segja svo frábær að ég leitaði dokumentasjónina uppi, hafði líka gaman að henni. Barnavælið er klassík :)

Sveinbjorn sagði...

Þó að þú sért kominn heim þá þýðir það ekki að þú megir hætta að blogga. Meira fyndið takk.

odi hattarinn sagði...

ahhh, já það. Ég er sko í einhverju djöfuls akkorði núna. Meira um það síðar.