þriðjudagur, júlí 08, 2008
Ég veit það ekki.
Stundum og þá meina ég eiginlega alltaf.. segjum bara oftast, á ég mjög erfitt með að vita hvað mér finnst um hlutina. Ég skipti um skoðun á ljóshraða og á afar erfitt með að halda mig við eitthvað ákveðið. Til dæmis núna. Fyrir utan svefnherbergisgluggann eru þrír menn að sarga í sundur hellur með steinsög. Þeir byrja klukkan átta á morgnana og svo heldur djöfulgangurinn áfram fram eftir degi. Þar sem ég vinn á kvöldin þá er ég yfirleitt ekki komin á fætur fyrr en í fyrsta lagi klukkan ellefu. Mér finnst mjög huggulegt að sofa og hvíla mig en ég á eitthvað erfitt með sjálfa mig þegar ég vakna seint. Þá líður mér eins og ég hafi sóað deginum. Ég held að þetta sé einhver norsk og helluð arfleifð. Núnú og nema hvað. Ég get ómögulega ákveðið hvort mig langi til þess að opna gluggann og garga á mennina fyrir að gera ráð fyrir að allir vinni frá átta til fimm eða sjö til fjögur eða hvernig í dauðanum "eðlilegur" vinnutími er og skamma þá fyrir að vekja mig með nístandi hávaða, eða hvort ég eigi að opna útidyrnar, gægjast út fyrir og þakka mönnunum fyrir að gera mér ókleift að sofa fram undir hádegi og hrósa þeim fyrir að vera svona duglegir að helluleggja. Þetta telst líklega ekki með sem vandamál en alltaf endar með því að ég stari bara út í loftið og veit ekkert hvað mér á að finnast. Sömuleiðis ef einhver segir eitthvað móðgandi við mig. Er gott að fólk sé svona hreinskilið eða eru þau bara að vera helvítis dónar og eiga skömm í hattinn skilið. Í gær þá lenti ég einmitt í samtali og vissi hreinlega ekki hvort um móðgun hafi verið að ræða. Æi svei, nú veit ég ekki einu sinni hvort að það sé góð hugmynd að vera að blogga um þetta. Uppáhalds svörin mín by the way eru, ,,Ég veit það ekki" og ,, Ég held það en ég er ekki viss". Algengustu svörin öllu heldur, ég er ekki viss um að þau séu uppáhalds..... eða sko ég veit það ekki.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Mannst að senda mér myndina á mariamey28@hotmail.com twin sis ! jeee knus knus
Maja
ahhhh jáá
hún Dagný á sko eftir að senda mér hana. Fannst þér þetta ekki dáldið furðulegt? Ég varð hálffeimin þér að segja.
Jú mjög furðulegt. Ég fór beint og hringdi í pabba en hann hafði engin svör og hvað þá mamma heheh grín.
Hlakka til að sjá þessa mynd :)
Skrifa ummæli