föstudagur, júlí 25, 2008

Látum okkur nú sjá. Hvað er ég búin að gera í dag? Sofa fram eftir..tékk, drekka kaffi úti á palli..tékk..., veiða flugu upp úr téðu kaffi..tékk..., íhuga að fara í sturtu og skólpa mig..tékk.., lesa Fréttablaðið, 24 stundir og Vesturbæjarblaðið.. tékk.., brjóta af mér gagnvart slúðurbanninu mínu..ójá.
Ég get ómögulega stillt mig um að lesa slúðurfréttir. Ég renndi augunum yfir síðurnar og rak glyrnurnar í ,,frétt" um að Michelle Williams væri kominn með nýjan aðila upp á arminn. Svo flýtti ég mér að frétta yfir yfir slúðurkviksyndið áður en ég myndi komast að því hvern hún hefði dinglandi á arminum. Að sjálfsögðu fletti ég hratt til baka af því að ég réð ekki við forvitni mína. ,, Michelle Willams og Spike Jonze..töff." hugsaði ég. Að því búnu féll eitt titrandi reiðitár úr hvarmi mínum. Sjálfsagi minn er sem lin skita og það reiðir mig. Nei nei, það eru allir rólegir hérna í Vesturbænum.
Á eftir eru ég, sölumaðurinn og aríaprinsinnn að fara í myndatöku. Ég er vitaskuld búin að koma mér upp ímynduðu yfirvaraskeggi í tilefni dagsins og langar helst að vera með lambhúshettu á myndunum. Eða sko meira svona skíðagrímu.
Í gær fóru ég og systir og systursonur á Kung Fu Panda. Æ mig auma hve gaman. Okkur systrum þótti nú sérdeilis gaman að fara í gamla unglingabíóið okkar í Álfabakkanum. Því miður var stæk hlandfýla í salnum en þegar myndin byrjaði var alveg hægt að leiða lyktina hjá sér.
jááá er bara farin í sturtu.

1 ummæli:

La profesora sagði...

pissulyktin æ mig auma. en það var samt gaman. heldurbetur.