sunnudagur, september 07, 2008

Tilkynning.

Jæja góðir hálsar. Þá er best að koma sér að efninu. Sölumaður dauðans (árni gleraugnaglámur) er byrjaður að blogga. Bloggið hans er www.cottontopp.blogspot.com. Á hverjum degi spyr drengurinn: ,, Ertu búin að lesa bloggið mitt í dag?".

Ég mun setja link á hann þegar ég nenni að hanga á þessu skítalarfa internet rusli.

í veskinu mínu liggur snickersræfill og bíður eftir að ég borði sig. Svo mun ég ræflinum niður með Cillit Bang. Ég held að manneskjan, sem fann upp nafnið á þessu hreinsiefni, sé pínku vitlaus eða kannski alltaf pínku full.

Collateral er mynd kvöldsins, ef einhvern langar að ná mér út úr húsi þá verður sú manneskja að mæta með kíttispaða. Ekki það að sú mynd sé eitthvað góð. Mér finnst bara svo gaman að sjá myndir með Tom Cruise eftir að ég komst að því að hann væri klikk.

Bless, mér þykir alveg vænt um ykkur, svo lengi sem þið standið ekki fyrir sjónvarpinu eða borðið snickersið mitt. Glamúúúr.

1 ummæli:

Egga-la sagði...

Kíki stundum hingað. Langt síðan síðast verður að viðurkennast. Smá tips frá mér til þín:
Diving bell og þarna butterfly myndin. Æi ég veit það ekki. Bókin er örugglega betri.
Pan´s Labyrinth: Disappointed! Verð nú bara að viðurkenna það.
kveðja frá Noregi