mánudagur, október 13, 2008

eru ekki allir í stuði?

Fyrst sleppti ég því að blogga sökum leti, þar á eftir kom mikil vinnutörn, stuttu síðar skall á krepputíð.

Mig langar bara alls ekki að ræða neitt af þessu þrennu.
Annars var ég nú bara að koma frá Tromsö. Norðmenn eru dúllur en einnig afar duglegir að troða sér fram fyrir mann í biðröðum. Mig langar að einhver gefi út bókina ,, Alhæft um þjóðir".

Síðustu viku hef ég hamast við að horfa hvorki á fréttir né lesa dagblöðin. Ég tók þessa ákvörðun geðheilsu minnar vegna. Sambýlismaður minn er ekki alveg á sömu blaðsíðu og hefur tekið að sér hlutverk fréttaskýringamanns þvert ofan í óskir mínar. Á hverjum morgni vekur hann mig með upplýsingar um gengið og alla djöfulsins vitleysuna sem gengur hér á. Ég skamma hann í hvert einasta skipti en hann lætur það sem vind um upplýst eyru þjóta.

Afneitun er ein af mínum uppáhalds iðjum, iðjum heilans...iðja heilans, það er ekki heil brú í þessu. göö, hvar glopraði ég niður tungumáli mínu. Kannski byrjaði orðaforði minn að tætast í sundur um leið og landið fór í hundana. Mörg ár eru liðin frá því að ég uppgötvaði að mér fer best að lifa í vernduðum heimi þar sem ég tel mér trú um að allt sé í fínasta lagi. Æi, reyndar held ég barasta að heilinn minn sé að gefast upp. Það er eina útskýringin sem ég get mögulega fundið á því hvers vegna ég er með gamla Japis auglýsingu á heilanum. ,, Hundadagar í Japis.. óú óú ódýrt."

3 ummæli:

Blogg Meistarinn sagði...

Hehehe... hundadagar! Hvílíkt meistarastykki. Þetta blog þ.e.a.s.

La profesora sagði...

það var mikið að það heyrðist blogg úr horni.

odi hattarinn sagði...

mjöhh, ég er latur.