mánudagur, ágúst 25, 2008

Játning.

Nú verð ég bara að játa að ég horfði ekki á einn einasta handboltaleik. Ekki var það nú vegna áhugaleysis heldur vegna þess að ég get ekki horft á Ísland keppa í neinu. Ég verð alltaf svo geðbilaðslega keppnisóð og tapsár að ég er hætt að leggja þetta á mig. Síðasti leikur sem ég horfði á var á sautjánda júní í fyrra. Ég var stödd í heimsókn hjá kunningjum og skyndilega áttaði ég mig á því að ég var orðin snælduóð og gargaði þarna fyrir framan fólk sem ég þekki ekkert of vel. Ísland vann sem betur fer, annars hefði ég líklega farið að grenja.

Gaman að segja frá því að frá því að ég skrifaði Ísland vann sem betur fer, hefur heill vinnudagur liðið hjá. Ég sat í sakleysi mínu og bloggaði og þá var hringt í mig frá veitingastaðnum. ,, átt þú ekki að vera að vinna?" lesist með kólumbískum hreim.

,,Agg" æpti ég upp yfir mig og þaut af stað.

Og hér er ég núna komin aftur heim.
jájá.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er eins. Kem mér ekki inn í neitt svona íslands keppnis dót. Ég varð einu sinni svo æst yfir handbolta að ég kramdi næstum köttinn minn fyrrverandi úr spenning og blóðþrýstingurinn var rokinn upp úr öllu valdi. Þetta hafði bara verulega slæm áhrif á mig andlega :) Svo já ég horfði bara á hálfan leik og slökkti svo bara á sjónvarpinu.

:)

Bobby Breidholt sagði...

"Ádd þú ekkí verað VÍNA?"

odi hattarinn sagði...

hahahaha jú. Hvernig vissirðu að hann segir alltaf vína?

Bobby Breidholt sagði...

Haha. Vína og KókaÍNA. Það rímar. og því rökrétt.

odi hattarinn sagði...

hehehe, mamma þín er rökrétt.

Blogg Meistarinn sagði...

Ég er enn í eðli mínu sami gamli MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN, MEISTARINN,MEISTARINN! :)