Bannorð vikunnar:
Kreppan
Davíð Oddsson
Fjármálin
Kuldinn
Leigumarkaðurinn
Þjóðarskútan
Þjóðmálin
Æi bara allt sem fjallar um það hvað við erum royally screwed. Ef við erum það þá erum við það bara og drepumst úr hungri og kulda. Ég ætla að smíða mér bát og reyna að finna óbyggða eyju með trópikal ávöxtum. Ef það tekst ekki þá ætla ég bara að setjast í stól og bíða eftir því að drepast úr hungri og kulda.... eða nei ég ætla að hlaupa mér til hita þangað til ég drepst úr hungri.,... hmmm nei annars, ég ætla að skokka mér til hita í gegnum Stjórnarráðið og Seðlabankann og grípa mér nokkra feita menn sem ég ætla að grilla í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum. Hvað gerði ég aftur við fjandans ÍTR starfsmannakortið mitt? Ég á sko að fá ókeypis í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn.
Jæja,, ég hef ekki tíma til þess að blogga eins og einhver fábjáni, ég þar sko að fara að gramsa í skúffum. Bæ.
miðvikudagur, október 22, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Skemmtileg íþrótt, skúffugrams.
skúffugrams, pokahlaup. Hvort finnst þér skemmtilegra að gramsa eða leita? Eða róta?
Mest gaman að finna, hvernig sem það er gert. Eitthvað skemmtilegt í pokahorni, Eða skúffuhorni. Besta aðferðin er að moka með puttunum, einsog moldvarpa.
Skrifa ummæli