Halló krakkar. Fyndinn þykir mér túrisminn sem fylgir Airwaves vikunni. Flesta daga eru goritex húðuð þýsk pör að windowshoppa á laugaveginum og borða heimasmurðar samlokur á meðan þeir bíða eftir fyrstu rútunni út úr bænum, þeim þýsku finnst nefnilega landið mun meira spennandi en landinn. Um miðjan október fyllist Reykjavík af leðurjakkaklæddum sólglereygðum ferðamönnum í þröngum buxum sem munu að öllum líkindum ekki sjá eitt einasta náttúruundur fyrir utan ónáttúruundrið Bláa lónið.
Miðað við tíðafarið núna þá væri afar viðeigandi að Bláa lóninu yrði breytt í upprunalega mynd, eða eins og þetta leit út fyrir um tuttugu árum síðan. Þegar að maður skipti um föt í einhverjum kofa, fór í strigaskóm ofan í lónið til þess að rispa ekki á sér iljarnar í hrauninu og var á varðbergi gagnvart straumi af heitu vatni sem átti það til að umlykja mann fyrirvaralaust og brenna húðina. Jah, svona er allavega brengluð minning mín af þessu fyrrverandi náttúruundri. Ég man samt ekki hvað kostaði að fara ofan í. Kannski þrjár ískóla og tvær fernur af svaladrykknum Garpi.
Gaman þætti mér ef að auðkýfingar og nokkrir spilltir ráðamenn landsins landsins færu í innlit útlits mengað lónið og æfðu sig í hópdrukknun. (Sambýlismaður minn er einmitt á þessari stundu að lesa yfir öxlina mína og segja:,, Ekki svona mikið hatur Lóa." Ég veit ekki alveg hvað hann vill mér en ég ætla sko ekki að stroka þetta út. Fyrir utan þá staðreynd að ,,sumir" virðast ekki skilja muninn á hatri og léttu skemmtituði. Mikið væri nú leiðinlegt að lenda í helvíti fyrir það eitt að vera orðljótur bloggari.)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Haha, mér finnst þetta fyndið. Ekkert of mikið hatur fyrir mig.
Einmitt. Það má alveg tala um ríkt fólk og drukknun ákkúrat núna.
ég fékk einmitt þessa góðu hugmynd um að skreppa í Bláa Lónið um helgina, góð hugmynd þangað til ég áttaði mig á að sólgleraugandi - þröngaleðurjakka - liðið mun líklega hertaka það alla helgina.
og ég hef ekki komið þangað eftir að því var breytt þannig í hausnum á mér er ennþá hætta á skyndibruna og skrapi á iljum.
olla
Mig langar í Garp. Og græna ísinn sem var eins og ísnál og hét held e´g Glætan.
Glætan... já ég man.
Olla, slepptu því bara að fara í lónið. Það er ógeð.
Skrifa ummæli