mánudagur, nóvember 27, 2006

Í gær var ég að lesa frétt í blaði þar sem rugludallurinn Árni Johnsen var að væla. Að þessu sinni var hann búinn að skipta um lag á plötunni. Hann er greinilega nýbúinn að fatta að það er ekki hægt að segja að glæpurinn sem hann framdi hafi verið ,, tæknileg mistök" án þess að koma út eins og hálfviti. Aftur á móti er maðurinn ekki búinn að fatta að það er ömurlegt að reyna grenja út fyrirgefningu til þess að fá að troða rassinum á sér í þingsæti. Mikið hlýtur hann að langa í þessa oflaunuðu stöðu.
Af hverju fækkum við ekki fólkinu í ríkisstjórn. Þetta blessaða fulltrúalýðræði hljómar nú bara eins og algjört drasl hvort eð er. Mér finnst eins og flestir á þingi séu bara eitthvað lið sem langi í vellaunaða vinnu og völd til þess að skara eld að sinni köku. Davíð Oddssyni, tókst í sinni valdatíð, að hann kerfið nákvæmlega svo það myndihentaði honum best. Verst að maðurinn skuli ekki vera öryrki.


Í öðru blaði er hægt að skyggnast inn á heimili Árna í Breiðholtinu. Hann er einn af fáum Breiðhyltingum sem býr í einbýlishúsi. Á nánast hverjum einasta vegg var uppstoppað dýr.
Heimilið leit út eins fólkið sem byggi þar væri blanda af aðalbornum Englendingum og nýríkum Könum.

Blahh, ég er allaveganna endanlega búin að sannfærast að VG sé eini flokkurinn sem ég geti hugsað mér að kjósa. Ekki skaðar að ég hef verið aðdáandi Ögmunds frá því að ég var grunnskólanemi.

3 ummæli:

Sveinbjorn sagði...

Ég er sammála þér að það mætti alveg fækka þingmönnum um helming.
Ég er samt alveg ósammála þér með VG. Þeir eru alveg nöts. Ég held að ég muni, eins og í síðustu þremur kosningum, framkvæma mína sérstöku útgáfu af því að skila auðu. Sum sé að sofa yfir mig, geta ekki ákveðið mig hvern ég ætla að kjósa yfir daginn og nenna svo ekki niðreftir bara til að skila auðu.

odi hattarinn sagði...

En það er bannað að skila auðu Sveinbjörn. Ögmundur segir það.

La profesora sagði...

Ögmundur hefur alltaf minnt mig á Kolbrúnu sem kenndi mér í 12 ára bekk. annars er ég sammála því að það er ýmislegt til í vg. nöts er ágætis mótvægi við nötsin sem ráða.