Hvenær ætlar löggan að finna þessa bévuðu nauðgara?
Ég held reyndar að núna séu ,,feðgarnir", (en það kalla ég nauðgarana, vinum mínum til mikillar armæðu) búnir að skipta um starfsvettvang og stundi nú íkveikjur í gríð og erg.
Mér finnst að lögreglan eigi að gefa öllum konum brúsa með neonlituðu lakkspreyi. Þá er hægt að merkja þá, finna, hengja, brenna og skíta á.
Veikir menn my ass. Nauðgara, níðinga og morðingja ætti að hýða á Lækjatorgi og að eftir það ætti að láta þá drekka vatn úr tjörninni. Þetta fólk er búið að segja af sér sem manneskjur og núna er ég orðin brjáluð bara af því að hugsa um þetta. Ég nenni ekki að vera umburðarlynd gagnvart svona fólki.
Ég er dauðhrædd að labba um á kvöldin og mér finnst vegið að frelsi mínu. Mig langar í piparsprey í jólagjöf.
fimmtudagur, nóvember 09, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
þú átt ekki að vera umburðarlynd gagnvart svona fólki. prófum að senda þá í fangelsi í mexíkó og tattúvera nauðgari eða barnaníðingur á þá. þá munu þeir fá bestu mögulegar móttökur samfanga sinna, ekki einkaklefa með playstation eins og hér.
hear hear.
Skrifa ummæli