mánudagur, júní 25, 2007

Þá er að koma sér í vinnugírinn. Það eru engin takmörk fyrir því hversu löt ég get orðið. Frekar sit ég og spila tilgangslausa tölvuleiki þangað til ég er komin með náladofa í lappirnar og vöðvabólgu í axlirnar.

Áðan var ég á heimasíðu doktor Gunna. Hann var eitthvað að minnast á að rita endurminningar sínar. Mér fannst það nú ágætis hugmynd. Þegar ég hugsa um eigin endurminningar er ég hreinlega ekki með það á tæru hvað sé minning og hvað sé uppspuni. Ég var greinilega lyginn krakki.

Samkvæmt BMI staðlinum er ég ofalinn grís. Spurning hvað ég nenni að gera í því. Mér líður ágætlega og hef ekki lent í því að fólk sé að benda á mig úti á götu. Kannski eru allir svona kurteisir.

ég nenni ekki að vinna. yarghhhh.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ Lóa,

Stína hér manstu andskotans #### skítur, rúm tvíburalöðrungur og B&B yfirlið á Hugleiksæfingu, ég er í Istanbúl og komin með BLOGG! það er: fokkahontas.blogspot.com gaman væri að vera í sambandi, finnst þér ekki, ég kann ekki netfangið þitt mín kæra, en hef fylgst með síðu þinni og er ánægð með framvindu mála, USA, gangi þér allt í haginn perlan þín.

odi hattarinn sagði...

takk fyrir barnið blítt. nú er ég farin á bloggið þitt. emailið mitt er stinkerson@gmail.com