Ég er komin einu hænuskrefi nær skólanum í hinum guðvsvoluðu Bandaríkjum. Þá er bara að kvíða flugvallaferðinni.
Alveg finnst mér óskiljanlegt hvers vegna maður er grunaður um græsku um leið og maður stígur fæti inn á flugvöll. Hin svokallaða öryggisleit er bara brandari. Það að mega ekki vera með krem í handfarangri er byggt á misskilningi. Fróður maður tjáði mér að ástæðan fyrir því, að maður megi ekki vera með meira en 250 ml af vökva á sér, er sú að þá geti fólk ekki dundað sér við að búa til vökvasprengjur á leiðinni. Einnig tjáði hann mér að vökvasprengjugerð væri ómöguleg við þessar aðstæður því heimatilbúnar sprengjur af þessu tagi myndu sprynga í höndunum á manni áður en þær yrðu nógu öflugar til þess að valda almennilegum skaða. Svo þyrfti að þjappa vökvanum og eitthvað bla dí bla sem er eitthvað flókið og bla bla bla.
Líkurnar á því að lenda í vél sem er þéttsetin hryðjuverkamönnum eða flugræningjum eru mjög litlar. Ef ég mætti velja þá myndi ég frekar vilja fá góða þjónustu þar sem fólk er kurteist, maður er ekki grunaður um græsku og fær að halda tannkreminu sínu og taka bara sénsinn á því að vélinni verði rænt. Þá verður henni bara rænt. Mér líður ekkert öruggri með það að geta lent í tollvörðunum, flugvallalögreglunni eða einhverju þaðan af verra, í hvert einasta skipti sem ég fer t.d. til DANMERKUR. Mér finnst þetta fábjánalegt. Fólk sem ætlar að fremja glæpi fremur þá bara. Það finnur bara upp einhverja sniðugri aðferð næst. Bandaríkjamenn eru hvort eð er búnir að myrða alla sem eru ekki að deyja úr hungri eða AIDS í Afríku eða þá sem eru uppteknir við að drepa nágrannaþjóð sína eða verða drepnir af nágranna sínum.
Stundum finnst mér svo skrítið að það sé ennþá fólksfjölgunarvandamál í heiminum. Miðað við fréttir af dauðsföllum, styrjöldum, fuglaflensum, offitu, reykingum og náttúruhamförum ætti nú að vera tómlegt um að litast.
Ef skattpeningar mínir færu frekar í að hjálpa bágstöddum í stað þess að fá enn aðra óskiljanlega umferðarslaufu þá væri ég sátt.
Hmmm.. ég held að ég hafi fengið vitlausa sprautu hjá lækninum í gær. Hún hlýtur að hafa látið mig fá reiðisprautuna.
þriðjudagur, júní 05, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
hæ litla reiðisprauta. kannski er einhver líka að reyna að eitra fyrir þér...
annars er ég alveg til í að samþykkja þessar hörðu öryggiskröfur á flugvöllum, um leið og fyrsta fréttin berst af flugvél sem var sprengd upp með tannkremi.
hahaha, mér er runnin reiðin. Það gerðist um leið og ég vaskaði upp.
Skrifa ummæli