Jæja starfsfólk Guinnes Book of Records dragið fram penna og skrifblokk. Nýtt met var í þann mund að fæðast.
Ef frá taldar eru bronseftirmyndir af fólki þá held ég að ég eigi heimsmetið í að vera kúkuð á af fuglum. Áðan sat ég í makindum úti í garði og las. Skyndilega féll eitthvað volgt og slepjulegt á öxlina sem slettist niður á framhandlegg og á kjólinn minn. Þetta var tilræði númer fjögur.
Nú er mér allri lokið. Nú verð ég hreinlega að gerast trúuð og komast að því hvað það er sem vekur reiði Guðs. Þetta hlýtur að vera áminning vegna einhvers sem ég hef gert.
Engan þekki ég sem getur toppað þetta met og þegar ég hafði einungis lent í þessu þrisvar gat heldur enginn toppað mig. Ég þarf greinilega að fara niður í Klifurhús og rannsaka þetta meðal fjallaklifursgarpa.
Á eftir kemur Lísa Páls og sækir mig. Hún ætlar að keyra mig á æskustöðvarnar og taka viðtal við mig um Breiðholt. Jibbí, mér finnst einmitt svo skemmtilegt að tala um einmitt það og núna er ég ekki að vera kaldhæðin.
miðvikudagur, júlí 04, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
hvað er þetta með fugla?
ég man eftir einu atviki þegar það var kúkað á barminn á þér...híhí
hér í mexíkó var einu sinni kúkað á hausinn á mér þar sem ég gekk í miðbænum. nú og svo er ég búin að fá tvo fugla í heimsókn sem kúkuðu á sófann minn. en það er annarskonar met.
hmmm.. ætli þetta sé eitthvað með okkur systur?
Skrifa ummæli