í þriðja skiptið í sumar ligg ég hér nær dauða en lífi. Þetta eru afleiðingar af bólusetningum. Ég hef alltaf verið sprautuð á mánudögum og lo and behold, á fimmtudegi er ég sem uppvakningur. Að vísu hefur það hvarflað að mér að þetta sé einfaldlega líkami minn að tilkynna mér að ég sé komin með krabbamein.
Núna ætla ég að setja höfuðið á mér í gufubað yfir potti. Ég hef trú á svoleiðis skottulækningum.
fimmtudagur, júlí 19, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
af hverju ertu að fara í allar þessar bólusetningar? hvaða vitleysa?
Sko ég þurfti að fara þrisvar. í fyrsta lagi af því að skólinn vildi að ég væri bólusett fyrir rauðum hundum, mislingum og hettusótt. í öðru lagi er þetta vegna þess að ég er að fara til mexikó og hef ekki verið bólusett síðan 1993.
Skrifa ummæli