Ég er að taka heilsupillur frá Heilsuhúsinu og er orðin sannfærð um að það sé ekki allt með felldu í því húsi. Svei mér þá ef það er ekki spítt í hylkjunum sem þau eru að framleiða.
Núna er klukkan hálftvö eftir miðnætti og ég var að koma úr garðinum þar sem ég stóð og hengdi upp þvott. Áður en ég þaut út í garð vaskaði ég upp eftir sambýlinga mína. Þar með talinn horror pottinn. Aldrei á ævi minni hef ég séð jafn brenndan botn. Ég vissi ekki að það væri hægt að brenna spagettí svona illilega.
En jú jú ef einhver hefur áhuga á lífi mínu og list þá er hér svona mynda síða sem ég apaði upp eftir systur minni.
http://www.flickr.com/photos/loaloaloa/
Þar sem ég er linkasauður þá er bara best að kópí peista þetta. ha? bara kópípeista þennan fjanda.
þriðjudagur, júlí 17, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Þetta er sá fallegasti bolli sem ég ef augum litið lengi! Þvílíkt augnakonfekt!
Hann fæst á Siglufirði í Gallerí Sigló. Þú hefur tölt þar framhjá á leiðinni á fallegustu tónleika í heimi.
Skrifa ummæli