Ég er komin til Ameríku. Mikið er fínt að vera í fríi.
Í íbúðinni beið okkar morknað lítið jólatré. Ég er að spá í að horfa á það þangað til tréð ákveður að fara af sjálfsdáðum.
Hveitiofnæmið er eitthvað að færa sig upp á skaftið. Áðan var ég að borða kjúkling og hrísgrjón. Svo fór mig að klæja í hálsinn og tók loks eftir að inn á milli grjónanna voru litlar hveitinúðlur að fela sig. Maður er svona helvíti viðkvæmur.
Jæja núna ætla ég að horfa á 30 Rock með Tinu Fey. Hún er skemmtileg. Svo ætla ég að reyna að fá Snúlla Snæ með mér í bíó.
föstudagur, janúar 11, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
velkomin til ameríku litla læknaundur. við söknum þín.
ei segði ég nei við fey. sei sei.
Takk ég sakna ykkar sömuleiðis. Núna erum við komin með eldhúsborð og það mun fara vel um ykkur er þið stígið fæti á ameríska grundu.
Nei, Fey er ekki svei. Þess má geta að þátturinn var fyndnari en nokkuð annað.
Skrifa ummæli