Við kæstu skötuhjúin erum komin með nýtt sveitt áhugamál. Ég gaf aríaprinsinum Nintendo DS í jólagjöf og þar sem ég er kóngur mikill þá splæsti ég nú bara í aðra handa sjálfri mér. ,, Janúargjafir handa sjálfum sér eru vanmetnar." réttlætti ég og dæsti. Núna getum við prinsinn keppt í allskyns tölvuspilum. Svo sit ég og mæli ókvæðisorð og bölva elskhuga mínum. ,,DRULLA!!", ,, ÉG HATA ÞIG", ,, ..KEMUR HELVÍTIS EÐLAN!" æpi ég á vesalings drenginn. Hann tekur því nú bara með jafnaðargeði enda endemis rólegur náungi.
Skólinn minn hefst eftir viku. Amerískt par er á höttunum eftir mér og Aríaprinsinum. Þau vilja endilega eyða tíma með okkur því þau eru svo óhamingjusöm ein og sér. Ég fer undan í flæmingi af því að mér finnst svo óþægilegt þegar fólk rífst fyrir framan mig. Rétt fyrir jól sat ég með téðum hjónum á veitingastað og horfði á magnþrungið störueinvígi sem þau háðu mér til mikillar armæðu.
Jæja, hér er gestur og matur.
Sjáumst.
mánudagur, janúar 14, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hæ Lóa litla frænka (á svo mikið af Lóufrænkum í allar ættir en þú ert yngst!)Til hamingju með Dsina ykkar.Þrátt fyrir gamals aldur er ég óbarinn meistari á mínu heimili í Super Mario Bros!! Og karl faðir minn ekki viðræðu hæfur þegar hann er hér í heimsókn, bissí að spila!! Ekki samt hætta að tala saman, það er líka gaman.
hahaha, ég hélt að við værum eina fólkið yfir tvítugu sem spilaði þetta. En við tölum að sjálfsögðu saman inn á milli. Aðallega til þess að metast.
Skrifa ummæli