Bráðum á ég afmæli. Það er svo sem allt í lagi. Ég hef tekið þá gáfulegu ákvörðun að hætta í tímanum með pólitísku dark konunni. Þá verð ég með 14 einingar og svo get ég fært eina einingu á milli anna. Ég var nefnilega með 17 einingar fyrir jól. LÍN leyfir víst svoleiðis tilfæringar og hananú.
Ákvörðun þessa tók ég að hluta til út af afmælinu mínu. Ég fór að hugsa um afmælisdaginn minn og mundi þá eftir að ég yrði að eyða stórum hluta af honum í tíma hjá þessum kennara. Það þótti mér prump og svo tók ég allt í einu eftir því að ég er orðin nógu gömul til þess að sleppa því að gera það sem mér finnst leiðinlegt. Fyrir utan náttúrulega að borga reikninga, gera skattaskýrslu, svara þegar á mig er yrt, ekki skella hurðum, borða með hnífapörum, vera kurteis, greiða mér, sleppa því að lemja fólk sem mér finnst leiðinlegt eða vont, taka til, þvo fötin mín og fara reglulega í krabbameinsskoðun og til tannlæknis..... nú þegar ég hugsa um það þá er ég að pæla í að leggjast á götuna og láta FedEx bíl keyra yfir höfuð mitt.
Í gær var úrhellisrigning, engu að síður ákváðum við að trítla út í búð og kaupa eitt og annað. Og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx. Nú er ég reyndar ekki alveg viss hvort steypi sé meira en úrhelli en sumsé þá rigndi meira. Þar sem við stöndum á götuhorni, blaut inn að beini, tek ég eftir brotinni regnhlíf og loðhúfu á jörðinni. Við nánari athugun er húfan alls ekki húfa heldur stór, blaut, dáin rotta.
Ég æpti, að vísu ekki kvenlega því það hef ég aldrei getað gert, og svo fékk ég tourette og gat ekki hætt að segja: ,, Oj."
Mig hefur alltaf langað til þess að geta æpt dömulegu hryllingsmyndaópi. Öskrin mín eru meira í átt við áreynslustunur kraftlyftingamanna.
Núna þarf ég að fara að vinna.
Bráðum kemur hann Halli minn og þá verður gaman.
laugardagur, febrúar 02, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
bráðum ætlum vér að hringja í yður sökum afmælis yðar. það verður ánægjulegt. vér ætluðum að gera það nú en ákváðum að bíða hátíðardagsins til þess að geta sungið í eyru yðar.
systirin
kærar þakkir. Ég bíð spennt.
oj oj oj
Ertu að reyna að tala undir rós, er blauta rottan, brotna regnhlífin og rigningin myndlíkingarmál yfir eitthvað sem gerðist síðast þegar þú fórst í sturtu?
Skrifa ummæli