miðvikudagur, febrúar 13, 2008

Snjóah.

Hér snjóar og snjóar. Flestir í skólanum kepptust við að tuða út af veðrinu en mér þótti gaman að sjá borgina í vetrarham. Veturinn hefur verið mildur hingað til. Nú verður áhugavert að sjá hvernig Bandaríkjamenn hegða sér í snjó. Ég hef ekki hugmynd um það. Kannski detta þeir oftar en fólkið heima.

Þriðjudagar eru ansi strembnir því þá er ég í skólanum frá níu til níu. Fyrst mála ég í sex klukkutíma, svo æti ég og prenta í þrjá og að lokum set ég saman víra og batterí og ljós og bý til leikföng í þrjá klukkutíma. Ef ekki væri fyrir gífurlegt skemmtanagildi ofantalinna námskeiða, þá væri ég ekki glaði kallinn sem ég er í dag.

Áðan sá ég agnarsmáan pulsuhund í rauðri úlpu kúka. Fyndið? Já, svo sannarlega. Af svipnum að dæma fannst eiganda voffans það ekkert spes.
Á fimmtudaginn erum við að fara til Portúgal. Ég missi af fyrsta deginum af NY Toy fair en get að öllum líkindum bætt mér það upp á mánudeginum. Ef ekki þá mun ég kasta upp af vonbrigðum. Helst fyrir utan húsið sem hýsir ráðstefnuna.

En já já, sjáum bara hvað setur. Nú ligg ég eins og bölvuð klessa og mun bráðum rísa upp til þess að snæða. Sæl að sinni.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

góða ferð til portúgal litli kall. þar er sennilega ekki snjór en kannski sérðu samt portúgala detta.
systirinn

odi hattarinn sagði...

hehe, takk. Thetta verdur einhver gedveiki. vid fljugum a morgun, lendum a fostudaginn, spilum a fostudaginn, fljugum a laugardaginn og lendum a sunnudaginn. jedudda.

Nafnlaus sagði...

jedúddamía! (með norskum hreim)
systirin aftur

Kristín sagði...

hesú maria hósei (með portúgölskum hreim)

Nafnlaus sagði...

Urr..voff