föstudagur, febrúar 08, 2008

vahú

Jæja, afmælið mitt var dásamlegt þökk sé yndislegu fólki. Ég fékk skemmtileg símtöl og email og comment og ég var bara mjög hamingjusöm.

Í gær var ég að rölta heim, framhjá mér hjólaði lúði á fjallahjóli og flautaði fít fíjú á mig. Ég setti upp svip en svo fór ég að hlæja í laumi af því að ég hélt að menn hefðu hætt að flauta fít fíjú fyrir mörgum árum síðan. Í hádegishlénu mínu í gær gengu ég og Lulu skólasystir mín framhjá konu með svartan kross á enninu. Ég leit glottandi á Lulu og sagði: ,, Eitthvað er nú að." Þá sagði Lulu: "It´s Ash Wednesday lúðinn þinn."
,, Ha?" hváði ég ósköp heimóttarlega. Það sem eftir lifði dags sá ég fullt af fólki með öskukross á enninu. Þetta eru víst kaþólikkar sem fara í kirkju á Öskudegi og presturinn klínir ösku í kross á ennið á þeim. Mjög furðulegt og dramatískt á að líta. Ég útskýrði öskudag fyrir Lulu og henni fannst okkar aðferð til að halda upp á öskudag vera mun skrítnari.

Aríprinsinn er að reka á eftir mér og því verð ég að drulla mér. Ég man samt ekki af hverju við þurfum að flýta okkur. Ætli það sé kviknað í?

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahaha!

þetta minnir mig á það hvað mér þótti fyndið að færeyingar skildu kalla tíkarspena rottuhala. þegar ég fór svo að útskýra fyrir þeim hvað tíkarspenar þýða í bókstaflegri merkingu komst ég að því að því hverjir eru klikkaðir.

odi hattarinn sagði...

hahaha, tíkarspenar. Svei mér þá ég hef aldrei pælt í því áður.

La profesora sagði...

hehe.... ég fattaði þetta með öskuna einu sinni í mexíkó. gleymdi greinilega að segja þér frá því.
var annars nokkuð kviknað í?

odi hattarinn sagði...

nei nei, við vorum bara að fara að hjálpa Hólmari að flytja dót og árni var að reka á eftir mér.