Ein ég sit og myndi vera að sauma inni í litlu húsi ef ég væri ekki læst í bakinu. Þar sem allt er álíka sársaukafullt þá get ég alveg eins drullast til þess að blogga eins og hvað annað. Með uppgjöf í augum horfi ég á draslið í kringum mig. Áðan reyndi ég að vaska upp en það var eins og að fá rýting satans í bakið. Helgin var annars drullugóð. AP, sölumaðurinn, grafíski hönnuðurinn, bjöttabarnið, portúgalinn og auðarbróðirinn skemmtum dansandi þvögu á Nasa og það var nú aldeilis gaman. AP, sölumaðurinn og ég ætluðum út í sal að dansa en það gekk nú ekki betur en svo að við vorum gripin og crowd surfuðum óvart. Ég æpti og hló og rassaði óvart systur mína í andlitið. Það sem maður tekur nú upp á á gamals aldri. Kannski er bara ekkert undarlegt að ég sitji hér með þursabitið mitt.
Í gær gerðist sá stórmerkilegi atburður að við AP fórum í kjörbúð. Við kláruðum innkaupin og töltum svo út á bílastæði. Á þessum tímapunkti var AP orðinn ansi fölur og veiklulegur enda nýbúinn að næla sér í einhverja pest. Hann þurfti engu að síður að halda á öllum pokunum út af baklæsingunni minni. Nema hvað, við stöndum fyrir utan bílinn og mér verður litið á herra aríaprins. Svipurinn á andliti hans benti til þess að eitthvað verulega leiðinlegt hefði átt sér stað. ,,Hvað?" hváði ég. ,, Lyklarnir eru læstir inni í bílnum" sagði drengur þá. Þessar ótrúlega vonlausu aðstæður, sjúklingurinn, fatlaða stúlkan og læsti bíllinn, fengu mig til þess að taka veikluleg bakföll af hlátri. Aríaprinsinum var hins vegar ekki skemmt. Þá varð ég ennþá kátari og gat ekki hamið flissköstin. Eftir skammir, meira fliss og nokkrar góðar Mcgyver tillögur frá mér, endaði ævintýrið á því að ég hringdi í tattúveraðan lásasmið og borgaði honum u.þ.b. 50 evrur. Blóðugt en nauðsynlegt. Það eina sem vantaði upp á var þrumuveður og einn góður mávaniðurgangur í augað.
Í dag greiddi ég alla mína reikninga nema einn og á þá eftir 30.000 krónur út mánuðinn. Geri aðrir betur. Ég sé fram á hafragrautsát og vatnsdrykkju. Ég sem ætlaði að baða mig upp úr geitamjólk og kampavíni. Jæja, best að fara að dópa í verkjalyfjum og bólgueyðandi. Adieu.
þriðjudagur, ágúst 05, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
hehehe.... já þegar ég var með rassinn á þér í lúkunni... góðar minningar.
Uss heyrðu heyrðu.. eftir alla greidda reikninga og visa á ég líka 30 þús. Gaman af því. Mæli með fiskibollum í niðursuðudós.. mjög ódýrt ;)
sælar maría hjálmtýs og maría hjálmars.
sorrí með rassið..
gott að vita af öðru blönku fólki. Þá líður manni aðeins betur. Annars greiddi ég síðasta reikninginn og núna eru það 2500 krónurnar á debetkortinu og svo bara visa. húrra
takk fyrir síðast báðar tvær. Q bar lifi.
Skrifa ummæli