Hér ligg ég á uppblásinni dýnu og googla apa. Hugmyndakennarinn minn lét okkur fá apaverkefni síðastliðinn mánudag. Við áttum að stúdera apa og búa til eitthvað ægilegt concept. Mér finnst engin þörf á því þar sem apar eru alveg nógu merkilegir og er að pæla í því að búa bara til apa altari.
Japanskir snjóapar eiga hug minn allan eftir ábendingu frá sölumanninum. Sölumaðurinn dvelur hjá okkur næstu vikuna. Það er skemmtilegt. Ennþá skemmtilegra þykir mér að hann fékk það frábæra verkefni að passa apa.. hmm nú ætlaði ég reyndar að skrifa hunda. Djöfull.. ég vildi óska þess að hann væri líka að passa apa. Hundarnir sem hann er að passa heita Buffy og Tyson og eru eins og hundur vonda kallsins í Pocahontas.
Litlu rassgötin fögnuðu okkur ákaft þegar við komum heim til þeirra. Svo fórum við þrjú með dýrin í labbitúr og mér þótti samstundis vænt um þau.
Í nótt neyddist sölumaðurinn svo til þess að reka voffana út úr svefnherberginu sínu því þeir voru að vera með læti. Svo hrjóta þeir eins og astmaveikir flóðhestar. Ég gæti hreinlega kramið þá í mauk. MAUK.
sunnudagur, nóvember 18, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Koss til Lóu minnar - ég sakna þín úr daglega lífinu og hugsa oft oft til þín. Svanurinn þinn glottir að mér úr gluggakistunni. Sendu mér nú póst á nafnið mitt hjá penninn.is - bréfaskipti okkar í gegnum tíðina eru rafrænnar þyngdar sinnar virði í gulli og ekki seinna vænna en að endurvekja fornar hefðir.
Æsa
Var að lesa kommentið yfir, þetta er nú meira orðskrípið - þetta er helv.BA ritgerðinni að kenna, ég virðist stöðugt þurfa að tjá mig í frösum. Skrifaðu mér!
Icy
Oi, achei seu blog pelo google está bem interessante gostei desse post. Gostaria de falar sobre o CresceNet. O CresceNet é um provedor de internet discada que remunera seus usuários pelo tempo conectado. Exatamente isso que você leu, estão pagando para você conectar. O provedor paga 20 centavos por hora de conexão discada com ligação local para mais de 2100 cidades do Brasil. O CresceNet tem um acelerador de conexão, que deixa sua conexão até 10 vezes mais rápida. Quem utiliza banda larga pode lucrar também, basta se cadastrar no CresceNet e quando for dormir conectar por discada, é possível pagar a ADSL só com o dinheiro da discada. Nos horários de minuto único o gasto com telefone é mínimo e a remuneração do CresceNet generosa. Se você quiser linkar o Cresce.Net(www.provedorcrescenet.com) no seu blog eu ficaria agradecido, até mais e sucesso. If is possible add the CresceNet(www.provedorcrescenet.com) in your blogroll, I thank. Good bye friend.
Æsa mín. Æ hvað það er nú gott að heyra frá þér. Hvaða adressu ertu með? ég heyri klingja í gulli.
Skrifa ummæli