sunnudagur, nóvember 25, 2007

Drullusokkur

EIginmaðurinn gerðist framtakssamur í hádeginu og skellti sér í Family Dollar búðina og festi kaup á þessum líka forláta drullusokk. Nú getum við tekið á móti gestum í spreng. Árnarnir fóru í bæinn rétt í þessu en ég húki heima og teikna. Ég sé þetta nú ekki sem kvöð. Gvöð. Ég er að vinna upp tapaðan tíma. Best að vera ekkert að blogga og eyða tímanum.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það gengur greinilega ýmislegt á með kúkinn þarna í útlandinu.
mér til mikillar skemmtunar.
systirin

Olla Swanz sagði...

hey - ertu flutt inní hús? þitt eigið? sem þú borgar leigu í? Ég vildi helst fá nákvæmari fréttir úr hvunndagslífinu þínu, ég hef engan til að spurja útí það....