þriðjudagur, nóvember 20, 2007

þriðjudagur guði sé lof

Nú dregur til tíðinda. Nei nei, mig langaði bara að byrja bloggið á þessum orðum.

Í fyrradag gistum við hjá hundunum. Við komumst að því að minna gerpið er ekki hvolpur heldur þrolli. Það þótti okkur fyndið mjög því hún Buffy er pínkulítil og nautheimsk. Aðfaranótt mánudags, skeit dýrið á gólfið og ég hóf vikuna með því að stíga með stóru tánni ofan í gumsið. Svo komst ég ekki strax í sturtu því téðir voffar eltu mig á röndum og meinuðu mér aðgang að baðherberginu. Mjög hlægilegur viðbjóður sú sena.

Í morgun tókst mér svo að telja mér trú um að það væri miðvikudagur og ég stressaðist um fimm stig. Þegar dagaruglingurinn var leiðréttur, róaðist ég og fékk mér kaffi. Í eina tíð stundaði ég það að reyna að telja mér trú um að klukkan væri meira en hún væri og stillti allar klukkur vitlaust. Þegar mér tókst að plata sjálfa mig, stressaðist ég vegna tímaskorts en varð alltaf jafn fegin þegar ég fattaði að ég var ekkert orðinn of sein heldur hafði nógan tíma. Ég skil ekki hvað mér gekk til þar sem heiminn skortir ekki stressvalda. Hehe kannski ég fari að kalla Valdimar StressValda.

Ég er með tölvuna úti í glugga af þvi að við erum ekki með okkar eigið internet. Mér er orðið dáldið kalt á puttunum. Ég myndi blogga í vettlingum ef ég gæti.

Á fimmtudaginn er Þakkargjörðahátíðin mikla. Þá munu Bandaríkjamenn skríða til sinna heima, fara í kalkúnabúning, borða pílagrímahatta með indíánafyllingu og brenna nornir og ljósmæður. Eða það skilst mér.

Persónulega finnst mér Þakkargjörðahátíð betra orð en hið frumstæða Thanksgiving. Af hverju kalla þau þá jólin ekki Presentbuying og páska Eggeating? Svo þykir mér einnig undarlegt að kalla afmæli birthday eða fæðingardag. Til hamingju með fertuasta fæðingardaginn.

En ég er nú bara að ergja mig vegna þess að skólinn minn er ein allsherjar skipulagsóreiða. Ég reyndi að skrá mig í tíma en allir tímarnir sem ég á og verð að taka eru yfirfullir. Samt má ég ekki bara skrá mig í þá tíma sem ég vil. Skrítið. Tvær milljónir í skólagjöld og ekki pláss fyrir mann. Á eftir fer ég til námsráðgjafans í þriðja skiptið og hann ætlar að reyna að troða mér í skylduáfangana. Algjört R-U-D-L: rugl.

En jújú núna er bara að spýta í lófana, þurrka af sér tárin og snýta sér í fánann.

Bless í bæli.

Ef einhver getur útskýrt hvað mensen þýðir þá væri ég þakklát. Vinkona mín endar alltaf sms á því að skrifa þetta orð. Mér finnst of seint að spyrja hana núna í lok nóvember hvað orðið þýðir. Mamma hennar er sko norsk.

7 ummæli:

Olla Swanz sagði...

mens eða mense þýðir tíðarblæðingar á dönsku,, örugglega norsku líka...

- bezzerwizzerinn

odi hattarinn sagði...

Hahaha, þá er hún eitthvað að misskilja skandinavískar kveðjur því hún er ekki svona mikill húmoristi. takk fyrir að útkljá þetta mál.

Heyrðu Olla mín, ég hef nú ekki einu sinni séð þig síðan þú áttir barn. Hvernig gengur og það sem meira er, hvað heitir drengurinn og hvað er hann gamall og vantar þig barnaföt í amerísku fánalitunum?

odi hattarinn sagði...

Heyrðu ég fann gömlu bloggsíðuna þína. Svanur Áskell, ég er að fíla það. Ertu með annað blogg eða eitthvað svoleiðis? Ég er alveg til í að snuðra meira um tilveru ykkar.

Nafnlaus sagði...

túr - tíðir - hafa á klæðum - óþolandi blóðklessurugl sem ég er komin með leið á!

átti einu sinni heima í noregi. er ennþá að ná mér. ef þú sérð mig í navybláu eða drapplitu þá er það noregi að kenna.

eníveis. dáldið spes vinkona að kveðja alltaf með mensen. hvað á það eiginlega að þýða?
blóð.

La profesora sagði...

hlakka til að fá frá þér fæðingardagsgjöfina mína einhverntíman í kringum gjafakaupahátíðina eða sprengjudag (áramót).
blæðingar

Olla Swanz sagði...

heyrðu já - það er furðulega auðvelt að snuðra um heimilslíf mitt á netinu - litlinn er auðvitað með sitt eigið blogg: www.litlikall.blogspot.com og sína eigin flickr-síðu: www.flickr.com/photos/svanuraskell, við höfum það stórgott og ég mæli með fæðingarorlofi fyrir alla, þá er hægt að praktísera heimatjillið sem maður er búin að æfa sig í síðustu 15 árin

odi hattarinn sagði...

búin að snuðra um Svan og fjölskyldu, hlakka til að sjá Helgu í Navy blárri dragt í drapplituðum skóm við.

Majaaa hvað viltu í afmælisgjöf og hvað viltu í jólagjöf?

Mensen

Lóa