laugardagur, júní 09, 2007

Happidíhúpp. Í dag sat ég á gildum rassi og seldi skran á markaði. Það var stuð og er seðlaveski mitt fullt af já já seðlum. Græðgisglampinn í augum mér glitraði í sólskininu þar til fór að rigna. Ég gæti orðið ágætis skransali. Mér líður vel þegar ég er umkringd klinki og drasli. Jebbs..ahh..

Ég skaust rétt svo í galleríið um þrjúleytið og skilaði af mér hrossi og apa. Loksins, Ég var búin að trassa það aðeins of lengi. Rakspíraða eiturnaðran var með eitthvað budl. Ég tók mig til og talaði eins og óskipulögð en vingjarnleg listakona. Svo sagði ég bara bæ og valsaði út og snýtti Kölnarvatnsatómum úr nösunum. Já bæ.

fimmtudagur, júní 07, 2007

Jemms og hó. Núna er ég að reyna að vera dugleg að blogga því systir mín er lengst í burtu í suðurhöfum. Hún skammar mig ef ég er löt. Svo er ég líka að reyna að komast í einhvers konar skrifgír. Í dag er ég bara búin að vaska upp og hella upp á kaffi og lesa fréttablaðið. Þarna var ég næstum búin að skrifa ,, lessa fréttablaðið." Ég veit ekki hvernig maður færi að því ó nei. Mögulega er einhver í þessum töluðu orðum einmitt að lessa eitthvert dagblað. Maður veit aldrei með fólk.

Annars finnst mér leiðinlegt að lesa blöðin því það er alltaf einhver dómsdagstónn og hann vil ég ekki heyra svona í byrjun dags. Mig langar frekar að hlusta á Don´t worry be happy eða Baby don´t worry about a thing, ´cause every little thing´s gonna be allright. Þá gengur maður út í daginn mun jákvæðari. Eina ástæðan fyrir því að ég greip þetta blað í morgun var sú að mér finnst dónalegt að taka bækurnar hans Hulla með mér á klósettið. Það minnir mig á þegar George í Seinfeld fór að skíta með bókina úr bókabúðinni og þurfti að kaupa hana því bókabúðin var með eftirlitskerfi til að fylgjast með þessu.

Í gærkvöldi slökkti ég á sjónvarpinu þegar einhver náungi byrjaði að lesa upp úr viðtali við þriggja ára barn sem hafði verið misnotað af djöfuls ógeði. Af hverju er ekki bara hægt að dæma svona fólk og birta myndir af því svo það geti drullast til að skammast sín. Stundum væri ég alveg til í að Dexter byggi í nágrenninu svo hann gæti dílað við níðingana sem sleppa í gegnum kerfið. Já já nú er hann pápi minn líklega farinn að hugsa: ,, Alltaf við sama heygarðshornið, fasistinn dóttir mín." Ég sé bara ekki tilganginn í að vera liðlegur við fólk sem stundar það að rústa sálarlífi barna.

En humm og já. Í fjóra daga hefi ég ekki gert neitt sjálfri mér að gagni. Tilgangsleysi mitt er samt ekki farið að há mér alvarlega. Í þessa fjóru daga hefi ég stuðst við afsökunina: ,, Ég var í bólusetningu og maður getur fengið hita."

Aðdáandabréfinu sem ég sendi í gær var svarað samdægurs. Indælis piltur þessi Cooper náungi.

ahhhh núna verð ég að gera eitthvað gagnlegt. Þetta er hálfvitaleg leti.

miðvikudagur, júní 06, 2007

Í dag byrjaði ég á því að labba inn í eldhús, líta í kringum mig og æla lopavettlingi á tærnar á mér.
Svo vaskaði ég upp. Núna er mannhæðarhátt fjall af hreinu leirtaui inni í eldhúsi. Ég mun ekki raða því inn í skáp fyrr en að minnsta kosti einn meðlimur húshaldsins er búinn að berja þetta augum og mögulega fá samviskubit eða veita mér orðu.

Í gær tók ég mig til og skrifaði lista yfir allt það sem ég á eftir að gera, allan pening sem ég á í útistandandi skuldum, allar mínar skuldir og hluti sem ég gæti gert ef ég drullaði mér til þess að vera dugleg. Mér leið aðeins betur eftir listann. Þegar langur tími líður milli lista, á ég það til að mikla hlutina fyrir mér. Upplýsingarnar reyna að halda dauðahaldi í höfuðkúpu og heilabörk og þvælast fyrir hvor annarri. Til að minna á sig æpa þeir hver í kapp við aðra til að keppast um athygli. Þess vegna já virðast vandamálin stærri en þau eru í raun og veru. Já segjum það.

Aríaprinsinn og ég tókum okkur til í gærkveldi og töltum upp í stúdíó. Þar spiluðum við pool og bjuggum til helvíti fínt lag sem heitir Forsetinn eða The President þar sem það er auðveldara að jarma einhverja vitleysu á ensku heldur en að semja stuðlaða snilld á hinu ástkæra ylhýra. Þar sem við erum hvorki í ástarsorg né sjálfsmorðsmiðuð fjalla textarnir yfirleitt um eitthvað allt annað. Vídeótæki, hljómborð, simpansa, karabíska hafið og svo framvegis.

Áðan skrifaði ég fyrsta aðdáendabréfið mitt. Ég var að blaða í gegnum ótrúlega fallega bók sem heitir Overbite og hreinlega varð að þakka fyrir mig.

Ef þið vitið ekki hver Dave Cooper er nú þegar þá mæli ég með teiknimyndasögunum hans og málverkabókunum.

þriðjudagur, júní 05, 2007

Ég er komin einu hænuskrefi nær skólanum í hinum guðvsvoluðu Bandaríkjum. Þá er bara að kvíða flugvallaferðinni.

Alveg finnst mér óskiljanlegt hvers vegna maður er grunaður um græsku um leið og maður stígur fæti inn á flugvöll. Hin svokallaða öryggisleit er bara brandari. Það að mega ekki vera með krem í handfarangri er byggt á misskilningi. Fróður maður tjáði mér að ástæðan fyrir því, að maður megi ekki vera með meira en 250 ml af vökva á sér, er sú að þá geti fólk ekki dundað sér við að búa til vökvasprengjur á leiðinni. Einnig tjáði hann mér að vökvasprengjugerð væri ómöguleg við þessar aðstæður því heimatilbúnar sprengjur af þessu tagi myndu sprynga í höndunum á manni áður en þær yrðu nógu öflugar til þess að valda almennilegum skaða. Svo þyrfti að þjappa vökvanum og eitthvað bla dí bla sem er eitthvað flókið og bla bla bla.

Líkurnar á því að lenda í vél sem er þéttsetin hryðjuverkamönnum eða flugræningjum eru mjög litlar. Ef ég mætti velja þá myndi ég frekar vilja fá góða þjónustu þar sem fólk er kurteist, maður er ekki grunaður um græsku og fær að halda tannkreminu sínu og taka bara sénsinn á því að vélinni verði rænt. Þá verður henni bara rænt. Mér líður ekkert öruggri með það að geta lent í tollvörðunum, flugvallalögreglunni eða einhverju þaðan af verra, í hvert einasta skipti sem ég fer t.d. til DANMERKUR. Mér finnst þetta fábjánalegt. Fólk sem ætlar að fremja glæpi fremur þá bara. Það finnur bara upp einhverja sniðugri aðferð næst. Bandaríkjamenn eru hvort eð er búnir að myrða alla sem eru ekki að deyja úr hungri eða AIDS í Afríku eða þá sem eru uppteknir við að drepa nágrannaþjóð sína eða verða drepnir af nágranna sínum.

Stundum finnst mér svo skrítið að það sé ennþá fólksfjölgunarvandamál í heiminum. Miðað við fréttir af dauðsföllum, styrjöldum, fuglaflensum, offitu, reykingum og náttúruhamförum ætti nú að vera tómlegt um að litast.

Ef skattpeningar mínir færu frekar í að hjálpa bágstöddum í stað þess að fá enn aðra óskiljanlega umferðarslaufu þá væri ég sátt.
Hmmm.. ég held að ég hafi fengið vitlausa sprautu hjá lækninum í gær. Hún hlýtur að hafa látið mig fá reiðisprautuna.

mánudagur, júní 04, 2007

Góðan dag. Á eftir fer ég í bólusetningu. Þangað til ætla ég að sitja í plaststól og bíða þangað til Guð kemur og færir mér dömubindi eða breytir mér í karlmann. Í dag verð ég bólusett fyrir heilahimnubólgu, mislingum og mænusótt. Þetta verð ég að gera fyrir skólann þrátt fyrir að vera ekki par hrifin af nálum, stungum eða það sem verra er, hálfdauðum sjúkdómum í æðum mínum. Einu sinni átti ég kennara sem var á móti bólusetningum. Það má víst en ég veit ekki hvernig maður fær vottorð upp á það.

Á laugardaginn fór ég í danska rússíbanan Demon eða Deamoun. Það var erfitt að lesa flippuðu leturgerðina. Röðin í banann var hálftími, ferðin var hálfrar mínútu öskurreið. Ég náði að fá um það bil fimmtán kvíðaköst í röðinni. Ég fattaði ekki að ég væri svona mikil skræfa fyrr en ég heyrði mig tuða í fimmtánda skiptið: ,, Ég er ekki bakveik, hjartveik eða ólétt, ég er yfir 132 cm, þetta verður allt í lagi. Heldurðu að það verði ekki gaman? Ætti ég að fara úr skónum? Það er fullt af unglingum og tíu ára krökkum hérna og þessi þarna er miðaldra" Svo æpti ég í hálfa mínútu og kom út glottandi og sigurreif.

Í miðborg Kaupmannahafnar voru 30.000 svíar. Þeir voru allir í bláum og gulum fötum og sungu lagið wouh oh oh oh ooooooh. Um kvöldið kepptu Danir og svíar í hérna... fótbolta held ég. Óeirðalöggan var að sjálfsögðu mætt á staðinn. Ég held að þeir séu bara svona hressir og hrifnir af mannfagnaði.

Mér er að blæða út hérna. Svo mun ég á eftir telja mér trú um að ég sé komin með áður upptalda sjúkdóma. Ég ætti kannski að googla einkenni mislinga, heilahimnubólgu og mænusóttar svo ég viti hvernig mér, helsjúkri manneskjunni á að líða á eftir.
Núna ætla ég að standa upp, taka hatt minn og staf og reyna að gera eitthvað úr þessum degi. Fjandinn hafi það.

þriðjudagur, maí 29, 2007

Ætli ég geti bloggað eitthvað í dag? Hmmm.. ég er búin að fara út í sjoppu, kaupa mér kaffi og tvo penna. Þá er bara að klára að teikna verkefnið sem ég verð að skila.

Um helgina var ég á Stokkseyri, það var yndislegt og ég er næstum því komin yfir hundafóbíuna mína. Ég var að teikna til klukkan fjögur á sunnudagskvöldið og við hlið mér var risahundurinn Chico. Hann beið eftir mér og þegar ég fór að sofa, hlunkaði hann sér upp í rúm til mín og tók allt plássið. Við urðum hinir mestu mátar um helgina.

Ég er búin að vera svo hrædd við hann af því að hann reynir alltaf að stela sokkunum mínum þegar ég kem í heimsókn. Stundum glefsaði hann í mig af því að ég held að honum hafi fundist fyndið hvað ég var skelkuð í hans návist. Eigendur hans brugðu á það ráð að loka hann alltaf inni þegar ég kom í heimsókn. Núna verður það óþarfi.

Jamm. Systir mín er farin til Mexíkó og það finnst mér erfitt. Ég hef mikla þörf fyrir að umgangast hana.

Á Stokkseyri er álfa og tröllasafn. Hérna kemur spoiler og þú mátt hætta að lesa ef þú hefur hug á að heimsækja safnið. Sko þegar maður er búinn að ganga allt safnið á enda, kemur maður að litlu rjóðri. Þar situr tröllkarl. Hann stendur upp og eltir mann út. Ég hélt á þriggja ára barni og var með tvær átta ára sem ríghéldu í upphandleggina á mér. Það er erfitt að hlaupa undan tröllum þegar maður er fjórfaldur. Magnað hvað börn geta skrækt hátt.

mánudagur, maí 21, 2007

Ég svaf yfir mig. Fjandans helvíti. Reyndar var þetta meira í átt við að missa heilan dag úr en ekki sofa yfir sig. Ég sem átti að fara til læknis. Jæja ég er búin að panta nýjan, næstum því búin að fresta því og búa til risavandamál. En jú ég ætlaði líka í bankann og upp á LÍN og hjálpa systur minni í dag. Best að fá stórt samviskubit sem heldur fyrir mér vöku svo ég sofi aftur á morgun. Fjandans helvíti.

föstudagur, maí 18, 2007

Milli þess sem ég fylli upplýsingar í reiti, hlamma mér á stóla og tuða við þá sem verða í vegi mér, teikna börn sem vilja ekki borða matinn sinn og þeytist á milli staða, nagandi á mér neglurnar, er ansi mikið að gerast í heilanum á mér.

,, Mikið að gerast" er kannski ofsögum sagt. Vesalings heilabúið mitt er troðfullt af afskaplega leiðinlegri tónlist. Þegar ég verð stressuð hefst dagskráin af miklum krafti. Í dag hefur landslagið verið á þennan veg:

... a tiger trapped in side a cage, an actor on an empty stage.. COME SEE THE SHOOOOOW...

.. ég var með ( dúdda, binna, kidda, badda) á kagganum í gær....lalala... einasta ósk mín er súúúú að ég komi kagganum í laaaag strax í dag, í dag ég vonann komi kagganum í lag í dag að kagginn verði tilbúinn í lag.

... pizza hut hut hut duddururududd dudd pizza hut hut hut..

.. nú er ég léttur örlítið þéttur, ég er í ofsa stuuuði og til í hvað sem eeer...

..... cold blooded old times, cold blooded old times, cold blooded oooold times..

.. eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, sem tilbiður guð sinn og deyr..

Það er mjög langt síðan ég hef haft þjóðsönginn á heilanum, ég get ekki sagt að ég fagni endurkomu hans.
Hann hefur þurft að deila plássi í dag með Geirmundi Valtýssyni, Eiríki Haukssyni, Stuðmönnum, Smog og tjahh.. Pizza Hut
Mér líður eins og gömlum Kleppara.

Á morgun og um helgina verð ég að klára að vinna bókina sem ég er að skreyta, fara í bankann með múttu svo Bandaríkjamenn hleypi mér inn í landið, væla í LÍN, panta tíma hjá lækni svo Bandaríkjamenn hleypi mér inn í landið og... já bara fá mér kaffi eða eitthvað. Úhhh já og svo má ekki gleyma að senda teiknimyndasögu til Blekfrakkans. Og mig sem langar bara að fara í sund og leggjast í hýði með fullan poka af vídeóspólum og snakki. Snakk..hehe samt ekki jafn bjánalegt orð og drullusokkur.
Welp, alltaf sama stuðið hér. Áfram heldur hin eilífa eyðublaðaútfylling. Ég er nú þegar búin að áreita fimm manns í Bandaríkjunum með þrálátum emailskrifum.

Mér finnst dáldið leiðinlegt að flytja úr íbúðinni af því að það er svo gaman að búa með vinum mínum. Sem betur fer ætlar aríaprinsinn að koma með mér. Annað væri nú ónýtt.

Reyndar finnst mér ekkert leiðinlegt að búa í Reykjavík. Ég þarf ekkert meira fjör heldur en vini mína, sund, bíó, bókasafnið og svoleiðis. Auk þess hef ég ekki einu sinni prófað að borða á öllum veitingastöðunum í borginni. Ég hef farið í öll bíóin og allar sundlaugarnar og farið inn í flest hverfin í borginni.

Öhh, þessi eyðublöð hafa dregið úr mér allan mátt. Ég hef ekkert að tala um.

miðvikudagur, maí 16, 2007

Deginum hefi ég eytt að miklu leyti á internetinu. Ég datt inn á einhverja síðu sem frænka mín sendi mér sem auglýsir íbúðir til leigu í New York. Mikið eru íbúðirnar þarna litlar og dýrar og ljótar. Mér flaug ósjálfrátt í hug bíómyndin Dark Water þegar mæðgurnar í myndinni fluttu í ógeðsíbúð á niðurdrepandi svæði.

Ef maður ætlar að flytja til borgarinnar er víst best að glápa hvorki á friends né Duplex til þess að verða ekki fyrir vonbrigðum með kústaskápinn sem maður endar líklegast í.

Ég er svo heltekin af þessum fyrirhuguðu flutningum mínum að ég kem engu öðru í verk. Í stað þess að myndskreyta barnabókina sem ég þarf að skila á föstudaginn hangi ég á netinu og þess á milli er ég að dunda mér við að teikna litla karla með bláar lambhúshettur. Lambhúshettur... what?.. augnablik, ég þarf aðeins að fletta orði.....

..Orðið lambhús er fjárhús sérstaklega ætlað lömbum. Hvers vegna hettan er kölluð lambhúshetta er ekki að fullu vitað. Hún var upphaflega notuð úti við til sveita í verri veðrum og meðal annars þegar menn þurftu í lambhúsið. Gamall maður sagði mér þá skýringu að hettan væri eins konar hús á höfuðið og það sem út úr stæði af andlitinu, nefið og augun, minnti á haus á lambi. Ekki veit ég hvort þessi skýring er sú eina rétta.
Þessu lambi veitti ekki af lambhúshettu. ( hér var mynd af lambi með snjó á fésinu en ég náði ekki að ræna henni af netinu.)
Önnur hetta svipuð venjulegu lambhúshettunni er mývatnshettan. Hún er þó að því leyti frábrugðin að hún er með hökustalli og breiðum kraga sem fellur niður á herðar og axlir og er þess vegna miklu skjólbetri. Mývatnshettan var notuð í Eyjafjarðar-, Þingeyjar- og Múlasýslum en lítið annars staðar."

...og þá vitum við það. Lambúshetta væri líka skrítin stafsetning á orðinu. Kannski ég teikni nokkra litla karla með mývatnshettur. Best að komast að því hvernig hökustallur lítur út.

Já já já. Ég verð að drulla mér að fara að vinna svo ég þurfi ekki að vaka alla aðfararnótt föstudags.

Mikið væri nú gaman ef ég væri auðæfaerfingi. Ég er sannfærð um að ég myndi gera eitthvað gáfulegra við peningana heldur en ræfilstuskan hún Paris.

þriðjudagur, maí 15, 2007

Best að koma sér úr landi eftir kosningavonbrigðin. Við erum glataðir kjósendur og það sem verra er, vonlaus í Eurovision. Ef við ætlum að taka þátt í þessu aftur þá ættum við að senda einhverja eins og Geir Ólafs, Regínu Ósk og Friðrik Ómar og láta Skerjafjarðarskáldið semja ofan í þau. Þá er búið að afgreiða þeirra vonir og þrár og þar með losna við þau úr undankeppninni á Íslandi. Auk þess kæmi það fullkomlega í veg fyrir að ég myndi nenna að horfa á Ísland keppa. Þá væri þessu tuttugu og eins árs sorgarglápi mínu lokið. Ég verð alltaf jafn hissa á því hvað ég er mikið Eurovision nörd. Á hverju ári sit ég og æpi og garga og blóta hinum og þessum þjóðum sem ég myndi annars ekki hafa skoðun á.
jæja jæja jæja, ef einhver er mögulega til í að hjálpa mér að panikka ekki og fylla út eyðublöð þá væri ég mjög þakklát.

Langþráður gelgjudraumur minn er í þann mund að rætast. Ég komst inn í skóla í New York. Ekki er það á það bætandi en ég fékk mér kaffijógúrt og kaffi í morgunmat og sit og blogga á ljóshraða. Puttarnir mínir sjást ekki aahahahahaha.

Djöfuls eyðublöð drasl. Ég horfi bara á þetta og mig sundlar. Æ mig auma. Hvernig fer fólk að þessu? Fyrir það fyrsta skil ég ekki hvernig ég fór að því að senda út öll skjölin til þess að komast inn í skólann.

Ég ráfaði vansvefta og rugluð í alþjóðlegt enskupróf í nóvember og beið svo örvæntingarfull eftir niðurstöðunni. Þegar niðurstöðurnar komu áttaði ég mig á því að ég hef ekkert breyst síðan í menntaskóla. Ég hef alltaf og mun alltaf vera þessi óþolandi týpa sem labbar tárvot út úr prófi tautandi um niðurlægjandi falleinkunnina sem bíður mín. Nokkrum vikum síðar verð ég alltaf jafn hissa á því að hafa náð.

fimmtudagur, mars 22, 2007

Já, nú sit ég og borða hina dularfullu amerísku fæðu Pop Tarts.

Ég tróð þessu í brauðristina/ristavélina, beið andartak og svo þeyttust þessar dúllur upp á yfirborðið og inn í skolt minn.

Sá aríski brá sér nefnilega til fyrirheitna landsins og kom til baka með rotvarnar- og litarefna sprengjur. Innyfli mín eru nú varin um ókomna tíð og ekki sakar að þau eru þrútin og marglituð eins og regnbogi úr kjöti.

Í gær var ég að hlusta á Við og við. Þetta er platan hennar Ólafar Arnalds. Það er langt síðan ég hef orðið svona hrifin. Platan er stöðugt á fóninum og hér hef ég gengið um gólf hálf snöktandi hálf hlæjandi eins og miðaldra kona með tíðahvörf.

Annars er það að frétta að nú eru Músíktilraunir í fullum gangi og þar er ég að vinna. Sko vinna sem starfsmaður ekki sigurvegari. Þessi ósköp hef ég nú kallað yfir mig þrjú ár í röð. Miðað við almennt óþol mitt á flestum hárlausum tvífættum spendýrum þá er þetta skemmtun hin mesta.

Hárlausu, tvífættu spendýrin sem keppa í þessari íþrótt eru nefnilega hið bærilegasta fólk. Þær sem eru með tíðahvörf ættu alveg að kannast við þessa keppni þar sem hún hefur verið í gangi í um tuttugu ár. Ef ekki þá voru þær dáldið miklir lúðar.

Ég veit ekki af hverju ég er að ráðast á miðaldra konur í dag. Kannski er það vegna þess að ég er að vinna með unglingum og er meðvirk. OMG, lol nei glætan þú getur bara fokkað þér með það. HEY GAUR! Fokking mamma þín er með tíðahvörf.

Æi ég ætti kannski bara að vinna á elliheimili á meðan ég er að standa í þessu bloggveseni.

Jæja, bless.

þriðjudagur, mars 13, 2007

Í dag er ég að fara í Pilates með systur minn. Á morgun er ég að fara í Langintes með mömmu. Ekki á morgun heldur hinn er ég að fara í Fúsintes með ömmu.

Að mér sækir Baðhúskvíði. Líkamsræktarstöðvar hafa þau áhrif á mig að mér líður eins og afskræmdu svíni. Núna er ég tuttugu og átta vetra en get samt sem áður ekki hrist af mér svona lúðalega sjálfsmynd. Ótrúlegt alveg hreint. Það verður að segjast að ég hef orðið fyrir gífurlegum vonbrigðum með fullorðnu útgáfuna af mér.

Ennþá þjáist ég af myrkfælni. Aríaprinsinn er í Texas og ég sef með ljósið kveikt. Ég veit nú reyndar ekki við hverju ég bjóst en ég hélt að fólk á mínum aldri væri skynsamara. Fólk á mínum aldrei.

Ennþá bora ég í nefið.

Ennþá borða ég Cocoa Puffs.

Ennþá fresta ég hlutum og horfi á teiknimyndir í staðinn.

Ennþá verð ég móðguð ef einhver bíður mér ekki í afmælið sitt.


Systir mín Pilates er einnig grasekkja um þessar mundir. Ég fór með henni og afkvæmum í sund í gær. Mér til ánægju var ég alls ekki afskræmdasta spendýrið. Til að mynda sá ég mann.... nú verð ég að vara fólk við ef það er viðkvæmt fyrir andstyggilegheitum..... já humm mann ég sá sem var mjög undarlega loðinn. Upphandleggirnir á honum voru eins og ef sminkari hjá áhugaleikfélagi hefði reynt að gera hann loðinn með því að á hann afklippt hár. Þetta leit út eins og grín úr Police Academy ef einhver man eftir því fallega sorpi.

Ég og systir mín grínuðust með að hann væri dúkalagningamaður sem hefði farið í klippingu ber að ofan.

Nei þetta var nú kannski ekki svo andstyggilegt.

Bæ

mánudagur, mars 12, 2007

Fyrir tveimur árum var ég að vinna á leikjanámskeiði. Einn samstarfsmanna minna var mjög hugmyndaríkur og óskaplega góður í múgsefjun barna. Þetta gerði það að verkum að þegar við skiptum börnunum í hópa þá þurfti ekki að mata hann með fyrirmælum heldur var bara hægt að rétta honum lúku af börnum og tilkynna að þetta væri hans hópur.
Eitt sinn kom ég að hópnum hans þar sem börnin sátu þögul í hring í lótusstellingunni og tilkynntu mér að þau væru í jóga. Þess má geta að samstarfsmaður minn kunni ekki jóga, hann bullaði bara og börnin skemmtu sér konunglega.

Þegar kom að strætóferðum var þetta vandamál þar sem drengnum fannst fyndið að fá öll börnin til að öskra: ,, WHO LET THE DOGS OUT, WHO, WHO WHO WHO???!!" um það bil ellefuþúsund sinnum. Já eða HEY BALÚBBA og fleiri smelli. Þegar hann komst svo að því að ég væri með ofnæmi fyrir Who let the dogs out?, æstust leikar og hver strætóferð varð sem ferðalag í gegnum smáþarma Lúsifers.

Dag einn mætti drengsi í vinnuna í bol með mynd af erni Sjálfstæðisflokksins. Ég fékk tár í augun, hland fyrir hjartað og æpti: ,,HVAÐ!". Hann flissaði bara og talaði eins og þetta gæti komið fyrir hvern sem er. Síðan þá hef ég séð myndir af honum í blöðunum að kreista spaðana á misjöfnum sauð í flokksfénu. Mig grunar að seinna meir muni þessi fallni félagi minn verða áróðursstjóri fyrir eitthvað illmenni.

Við erum leiðitamir aumingjar og ég sé mikla möguleika á að hér verði komið á einræði. Hverjir ættu svo sem að mótmæla aðrir en oflaunuðu grísirnir á Alþingi.

föstudagur, mars 09, 2007

Eins og strúturinn, sem grefur höfuðið í sandinn, hef ég grafið höfuð mitt í snakkpoka. Þegar ég verð stressuð eða niðurdregin eða andlaus þá get ég stundum ekkert annað gert en að úða í mig óhollustu.

Þegar ég finn enga orsök fyrir niðurtúrum mínum þá hugsa ég alltaf að það hljóti nú bara að vera lægð. Núna vildi ég óska þess að einhver sæti á móti mér því þá gæti ég sagt: ,, Það hlýtur nú bara að vera lægð" með fullan munninn af snakki og lakki.. lakkrís meina ég.
Ég er að kafna úr sykurmagnsoverloadi. Ætli ég verði ekki blind á endanum.

Tvíburasysturnar frænkur mínar sömdu lag þegar við voru börn. Lagið heitir ,,Allir eru svo vondir við mig" og textinn er:

Allir eru svo vondir
vondir við miiiiiiig
Allir eru svo vondir
vondir við mig

Þegar fórnarlambshluti persónu minnar tekur yfir þá söngla ég þetta lag í huganum til að kæta mig.

fimmtudagur, mars 01, 2007

Núna er ég í þann mund að þrauka allra síðustu næturvaktina mína. Í dag leið mér hálf illa og ætlaði að hringja og tilkynna veikindi mín. Viti menn, ég hringdi, guggnaði og spurði svo yfirmann minn hvernig hún hefði það. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði og inni í höfði mér æpti rödd sem sagði að ég væri aulabárður og ætti skilið að fá ræpu. Svo lagði ég á og ráfaði guggin inn í stofu. Ætli yfirmaður minn hafi ekki líka hrist hausinn og velt því fyrir sér hvers vegna ég hefði skyndilega gerst svo almennileg að hringja í hana og spyrja um almenna líðan.

Það er mjög erfitt að athafna sig ef maður er ekki einu sinni með sjálfum sér í liði.

Hmmm já síðustu helgi heyrði ég í fyrsta skipti geisladiskinn með Doktor Minister og Mister Hamster. Vinafólk okkar notaði þennan tiltekna hljómdisk sem bakgrunnstónlist í matarboði. Aríaprinsinn spurði svo hvað þetta væri og húsráðendur gáfu það upp. Ekki bjóst ég við að það væri hægt að borða við þessa tónlist. En ég hafði sumsé látið fjölmiðla koma gjörsamlega í veg fyrir að ég myndi nokkurn tímann hlusta á þá kátu pilta að eigin frumkvæði. Ég þarf að hlusta á þetta aftur til að fullvissa mig um hvort þetta sé góð músík eða ekki. Nógu erfitt hefur mér þótt að kyngja nafninu Doktor Mister.

Eitt af sambýlisfólki mínu tók sig til á dögunum og samdi söngleik um fóstureyðingar. Allt heila klabbið verður frumflutt í vikunni. Á frumsýningunni munu svo gráir hártoppar fjúka, gangráðar stöðvast og gervitennur hrökkva ofan í kok. Eldri borgarar eru jú fjölmennasti hópurinn meðal leikhúsgesta. Annars er pápi minn bara nokkrum árum frá því að detta inn í þennan fríðindaklúbb og ég held satt að segja að hann myndi nú ekki kippa sér upp við smá fóstureyðingar. .. Þetta hljómaði einkennilega.

Ehhhh....ahahaha... klukkan er hálftvö og mér líður eins og Gísla á Uppsölum. Ein í heiminum að blaðra út í vindinn, í mínu tilviki, blásturinn frá rakatækinu á skrifstofunni.

miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Welp, loksins tókst blogger að pína mig til þess að skipta úr gamla usernum yfir í þann nýja.

Áðan var ég reið við þjónustufulltrúa, það hefur gerst nokkrum sinnum áður. Mér finnst svo ergilegt að fá ekki þá þjónustu sem ég er að borga fyrir. Stundum líður mér eins og ég hafi hringt í fjós en ekki banka.

Þegar bankanum berast símtöl fælast kýrnar og spretta dragtklæddar af stað út úr þjónustubásunum sínum. Sumar þeirra standa upp á afturfæturnar og prjóna. Júgrin sveiflast í allar áttir. Á endanum hefur einhver þeirra vit á að ansa. Þá tekur ekki betra við. Rödd viðskiptavinarins ómar í loðnu eyra og tvö blaut kýraugu stækka og verða óttaslegnari með hverri sekúndu sem líður. Hún skilur ekki og baular því á stallsystur sína.

Já já eða eitthvað þannig. Sko, ég er að reyna að fara til Bandaríkjanna í skóla til þess að upplifa langþráðan gelgjudraum. Ekki er útlit fyrir að það muni takast þar sem ég er alveg vonlaus í að skipuleggja mig og er alltaf að rekast á veggi. Til dæmis mun umsókn mín til skólans berast of seint.... æi það þýðir lítið að væla. Þetta fer einhvern veginn. DJÖfulsins samt. En þökk sé þessum umsóknarprósess hef ég nú teiknað fimm teikningar sem ég er einstaklega ánægð með. Ég held að þetta verðskuldi eitt vei. Vei.

En já ef ég kemst ekki inn í skólann þá veit ég ekki alveg hvað gera skal. Pffffff.

laugardagur, febrúar 17, 2007

Tha er eg komin til Danmerkur. I gaer spiludum vid a tonleikum. Vid svidid stod kona og var hun med einhverjar bendingar. Hun leit fyrir ad vita eitthvad thannig ad eg beygdi mig nidur ad henni. Konan bad mig um ad spila eitthvad med Janis Joplin. Tha mælti eg ekki ord af vorum heldur helt afram ad skemmta lydnum. Thad eru vitleysingar a hverju strai.

Ég er búin ad finna kommurnar. Í leidinni fann ég eitt sem ég er búin ad vera ad leita ad á mínu lyklabordi. Thetta er verdlaunathraut vikunnar. Hún er mjøg erfid og ekki fyrir børn. Var ég búin ad minnast á ad ég er í Danmørku.

föstudagur, febrúar 02, 2007

Í gær tókst mér að fullkomna bitter shrew útlit mitt. Ég keypti mér svartan kerlingatúrban. Barnlausar íslenskar konur eru ekki á hverju strái og þær fáu sem eftir eru ættu endilega að kaupa sér svona höfuðfat. Með þetta á hausnum eru afar litlar líkur á því að börn muni ónáða ykkur á götum úti.

Þar sem ég er gjörn á að endurtaka mig þá er ég næstum handviss um að ég hafi einhvern tímann, í fyrri blogglífum, sagt söguna af því þegar ég reif húfu af ókunnugu barni í Austurstræti og fleygði út á götu. Enn þann dag í dag skil ég ekki hvað kom yfir mig.

Núnú ég var á gangi í Austurstræti þegar tvö börn ákváðu að ónáða mig. Þau létu öllum illum látum, ulluðu, bentu og æptu. Þess má geta að ég er meðalhá, meðalbreið, skolhærð, með gráblá augu, ég haltra ekki og fötin mín eru dökk og óáberandi(fyrir utan nýja túrbaninn minn). Það sem ég er að reyna að segja er: Ég skaga ekki út úr á nokkurn hátt(nema núna með nýja túrbaninn minn). Nema hvað, þarna stóð ég umkringd ullandi börnum og vissi ekki mitt rjúkandi ráð. Fyrsta hugsunin var að sjálfsögðu: ,, Er ég með opna buxnaklauf?". En sú var ekki raunin. Eftir smá stund fengu börnin leið á mér og löbbuðu áfram. Á þeim tímapunkti missti ég vitglóruna. Það síðasta sem ég hugsaði var ,, Þetta skulu þau sko ekki komast upp með." Svo hljóp ég af stað, reif húfuna af öðru barninu, henti henni á götuna, æpti : HAH!, og rölti svo í hægðum mínum inn í KB banka þangað sem för minni var heitið. Börnin göptu en héldu svo í humátt á eftir mér. Þegar ég staðnæmdist fyrir framan gjaldkerann voru þau komin upp að mér. Annað barnanna setti hönd undir kinn og spurði hvers vegna ég hefði rifið af honum húfuna. ,, Bara" svaraði ég að bragði. ,, Langaði þig bara til þess?" spurði þá barnið. Þegar ég jánkaði því þá sagði barnið ókey og svo yfirgáfu þau bankann.

Ég get engar skýringar gefið á athæfi mínu. Impulsive doesn´t quite cover it.