laugardagur, apríl 12, 2008

ÍÍííííkh. Heili minn er að sjóða upp úr kúpu. Í dag er ég búin að prenta sex ætingarmyndir og klára eitt stykki portrettmálverk og þarf víst að sætta mig við það að vinna og vinna alla helgina.
Lappirnar á mér eru búnar að sofna um það bil, tre million sinnum vegna þess að ég sit eins og kjáni þegar ég er að vinna.

Núna ligg ég í sófanum með prentsvertu undir nöglunum, plástur á fingrinum og belginn fullan af osti og maískornum eins og hvað, jú eins og grís eða gríslingur.
Aríaprinsinn... sem minnir mig á það, ég þarf að finna nýtt nafn á hann. En já sumsugt, herra Hávær..hehehe, mikið er ég fyndin lítil ófreskja. Drengurinn er meira að vera tillitsamur um þessar mundir og situr því á móti mér með heyrnatól. Ætli hann sé ekki að búa til einhverja kakófóníska kransaköku. En ég gæti ómögulega vitað það því hér ríkir þögn.

Í gærkveldi fórum við á tónleika með gesti vorum herra Trumpington. Hann ásamt indælli stúlku frá Hol-landi spila dularfulla tónlist á undarlegum stöðum. Áður en við mættum á staðinn var ég að sjálfsögðu búin að snúa upplýsingunum, sem mér voru gefnar af sjálfum Trumpington, á hvolf og var allt kvöldið að undirbúa mig að hlýða á hörmulega Seinfeld slap bassa drullu. Svo reyndist alls ekki vera og ég var fegin og þetta var fallegt.

Um daginn var ég að ræða um broskarla við Hallarmúla. Hann heldur því fram að broskarla séu mikilvægir í samtölum á netinu, kommentum og þannig löguðu. Ég skil argúmentið en ég er bara rétt svo byrjuð að nota upphrópunarmerki. Mér hefur nefnilega alltaf fundist furðulegt að vera með einhverjar upphrópanir í texta! En kannski hef ég rangt fyrir mér og lífið er betra með :) og !

uppáhaldsorðin mín úr þessari bloggfærslu eru; ligg, grís, argúment og slapbassadrulla

6 ummæli:

Kristín sagði...

Uppáhaldsorðið mitt í þessari færslu er Hol-landi. Þú gerbreyttir nafninu og bara öllu landinu með því að skipta þessu svona í tvennt. Ég hef alltaf skynjað þetta sem húllum hæ og lallala Hollland er kúlland, skilurru, en núna er það bara tómið, óhugnalegt tómarúm.

Svo get ég sagt þér að ég skil alveg aðra sem nota broskalla, en get ekki notað slík hjálpartæki (fatlaðra?) sjálf, mér finnst ég vera að svindla á einhvern hátt (af því ég er ekki fötluð?).

odi hattarinn sagði...

Enda er alls ekki nauðsynlegt að ítreka grín með því að brosa.

Mér þykir leitt að hafa skemmt Holland fyrir þér.

La profesora sagði...

mér finnst hol-land líka flott :)!!
dett stundum óvart í broskallana :9 !!!
er minna fyrir upprhópunarmerkin! :D
mér finnst líka portrettmálverk flott orð!!!! ;/

odi hattarinn sagði...

Það er ekkert að því að nota broskarla. Halli vinur minn benti mér á í gær að það er alveg jafn skrítið að segja: ,,hahaha" á prenti eins og að nota broskarla. Ég neyddist til þess að vera sammála(aðallega af því að hann var að snúa upp á hendina á mér og toga mig á eyranu...neihh, djóóóóóóók).

Portrettmálverk eru erfið. Núna er ég að mála Kristínönnu frænku og þessa stundina lítur myndin út fyrir að vera af gammalli konu með húðsjúkdóm. Ég verð bara að halda áfram að klína málningu á þetta.

Nafnlaus sagði...

Slettu bara smá meiki á málverkið, sama og gamlar konur með húðsjúkdóm myndu gera í alvöru.

Finnst "Seinfeld slapbassadrulla" svo fyndið. Gleymdi að hlæja live fyrir þig í gærkvöldi, en var oft að hugsa um það.

Hahahaha :) !!!

Nafnlaus sagði...

uppáhaldsorðin mín úr þessari bloggfærslu eru; Kúpa, Kransakaka, Hallarmúli