miðvikudagur, apríl 23, 2008

tammtítei

Hér sit ég og teikna eins og sturluð kona. Talandi um sturlað, fjandans vottarnir komu aftur í dag. Í þetta skiptið voru þau þrjú. Sem betur fer er ég með greind á við meðalstórt spendýr já eða rottu og hafði þess vegna að vit á því að njósna í gegnum gægjugatið til að sjá hver væri að koma. Bölvaðir dónarnir hringdu bjöllunni tvisvar. Þarna stóðu þau í hnapp með bæklingana sína, konan síðan um daginn og tveir litlir vinir hennar. Ég lokaði gægjugatinu hljóðlega og læddist frá hurðinni. Þegar ég fór út stuttu síðar, voru þau búin að troða bækling milli stafs og hurðar. Mikið finnast mér svona óumbeðin trúboð leiðinleg. Það eina næstum því jákvæða við þetta, og kannski hef ég minnst á það áður, er að þau eru í alvörunni að reyna að bjarga manni. Ég skil samt ekki alveg hvað vottarnir eru að bauka með að banka upp á og reyna að frelsa fólk. Eftir því sem ég best veit trúa þau því að guð sé búinn að ákveða fyrirfram hverjir komast til himna, eitthvað um 144.000 manns auk þess eru þau ekki með neitt helvíti þannig að þetta er fullkomin ráðgáta fyrir mér. Mig persónulega langar ekki að lifa að eilífu með 143.999 vottum svo ég vona að þau hafi ekki rétt fyrir sér. Ef þau hafa rétt fyrir sér eftir allt saman, þá vona ég að ég hafi ekki lent í þessu guðsúrtaki. Ég var að enda við að fletta þessu upp og trúðurinn sem stendur fyrir þessari vitleysu heitir Charles Taze Russel. Kannski ég stríði vottunum og skrifi nafnið hans á bjölluna hjá mér. Svo læt ég lak yfir höfuðið þegar þau koma, lími yfirvaraskegg á lakið og þykist vera afturgangan hans Russels. Góð hugmynd. Jafn góð og lazershow í boði Íslandsbanka.

Um daginn fór ég á tónleika með hljómsveitinni Mini Kiss, þetta eru dvergar sem covera kiss lög. Aulinn sem ég er, gleymdi myndavél og því var þessi menningalegi viðburður ekki heimildaður af minni hálfu. Dvergarnir voru í fullum Kiss skrúða og Mini Gene Simmons var með tunguna út um allt. Ég fór með Haraldi og Jóhannesi. Við Halli vorum svo spennt að við skríktum á víxl.
Eftir að dvergarnir höfðu trítlað af sviðinu, mætti hljómsveitin Tragedy. Þeir eru metal hljómsveit sem spilar bara Bee Gees.
Á sömu stundu var gáfaði vinur okkar Eiríkur staddur á experimental jazz fusion tónleikum á smekklegum stað. Gjáin á milli okkar breikkaði eftir þetta kvöld og ég er ekki frá því að daginn eftir hafi Eiríkur litið á mig með fyrirlitningarsvip er hann las langa grein í New York Times og drakk makkíatóinn sinn. Ég yppti bara öxlum, drakk kokteilsósuna mína og fletti í slúðurblaði.

10 ummæli:

Iceland Today sagði...

mikið ertu skemmtileg, ég vil hlekkja þig við mig (með ást)

Nafnlaus sagði...

Þetta snýst allt um metafýsík.

odi hattarinn sagði...

takk magga best. ég fer hjá mér.

halli, ég skil ekki alveg hvað þú ert að tala um en ég er fullkomlega sammála þér.

Nafnlaus sagði...

no thanks, i'm educated.

þetta svínvirkar. mjög gott að endurtaka hana með áherslu á educated ef þau hætta ekki að tala. annars eru þetta kurteis grey. amk hérna á íslandi.

odi hattarinn sagði...

hahaha, af hverju fara þau ef maður er menntaður?

La profesora sagði...

ég myndi líma webcam við skráargatið, setja nafnið á vottakónginum á hurðina, taka upp svipinn á vottunum þegar þau reka augun í nafnið og hlæja svo dátt.

Nafnlaus sagði...

ég veit það ekki en þau gera það. sérstaklega ef maður segir það af festu. ég held reyndar að ofstækisfull trúarbrögð og hátt menntunarstig eigi ekkert ægilega góða samleið. það hlýtur að minnsta kosti að vera erfitt að sætta t.d. creationisma og þróunarkenninguna.

reyndar er mér alveg hrikalega vel við vottana, það er þjóðkirkjan og trúboð í skólum sem særir á mér rassgatið.

Nafnlaus sagði...

þetta verður eiginlega að fá að fylgja með http://www.youtube.com/watch?v=sV-a1vmZ6y8

odi hattarinn sagði...

hahaha takk fyrir þetta.

hmm best að redda sér webcam.

Nafnlaus sagði...

Ég elska fólk sem kann að meta góðann kokteilsósusopa
kv, Svanhvít