laugardagur, apríl 05, 2008

Lalalalaaa

Ég er að fara í barnasturtu eða baby shower. Það var dáldið skemmtilegt að fara í barnafatabúð og kaupa lítil föt. Ætli ég verði ekki bara í barnabúðum þegar ég kem heim fyrst fólk er að fjölga sér svona mikið í kreppunni. Sverrir Stormsker er ábyggilega búinn að semja lag um þetta.

En gaskarlinn kom og fór og núna getum við farið í bað. Ekki það að við séum búin að vera drullug í mánuð. Bara svona semí drullug. Við fórum í YMCA, böðuðum okkur heima hjá öðrum og svo voru nokkur kattaþvotts session með köldu vatni í vaskinum inni á baði. Áðan sat ég í garði með yndislegri frænku minni. Ég var að reyna að teikna hana en það var ekki alveg nógu vel heppnað hjá mér svo ég tók ljósmyndir og ætla að reyna að gera smekkleg málverk.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég fattaði ekki "barnasturta" (m.a.s. með "baby shower") fyrr en Árni sagði það í símann í gærkvöldi.

Ég fattaði sko ekkert hvernig þú tengdir einhverja litla sturtu við það að fara í búðir. Hélt að barnasturta væri að spara vatn eða nota ýkt mikið púður. *púff*

odi hattarinn sagði...

sko ég held að þú eigir að vökva móðurina með gjöfum.

Olla Swanz sagði...

hey lóa, - ert þú kona í að hjálpa mér með tollasvindl? langar svo að panta mér dót af netinu en tími ekki alveg þessu tolladrasli, datt í hug hvort ég gæti látið sendi heim til þín og þú svo til mín? - þér yrði sko ríkulega launað ...

láttu mig vita

olla

odi hattarinn sagði...

Tollasvindl eru mínar ær og kýr. Sendu mér email með addressuna þína og þá get ég sent þér addressuna mína. Þú mátt endilega sleppa því að panta þér frystikistu. Allt annað sleppur.

Nafnlaus sagði...

Tollasvindl? Einsog í að falsa málverk eftir Tolla?

Olla Swanz sagði...

lol eða olla-svindl ehf, sendu vörur til lóu vinkonu þinnar eins og Olla...

anyways - gmailið mitt er svansdottir@gmail.com

odi hattarinn sagði...

roger. Tollasvindl, Hallee you kill me.

Olla Swanz sagði...

hey - hvað er aftur ímeilið þitt?

odi hattarinn sagði...

stinkerson@gmail.com