þriðjudagur, apríl 15, 2008

Mandag

Mandag mandag, sa god med mig.

Ég var að koma úr skólanum. Frægur teiknimyndasöguhöfundur, Kim Deitch, var að leysa kennarann minn af. Því miður gat ég ekki nýtt mér ótæmandi viskubrunn gamla refsins því hann var svo skelfilega andfúll. Hann var eitthvað að skoða dótið mitt og tala og ég kúgaðist lítillega. Sem betur fer er ég svo mikil dama að ég gat kúgast án þess að vera með læti.

En jú og jemm, ég sat bara og teiknaði og lét lítið á mér bera. Ég gat ekki hugsað mér að finna þessa lykt aftur. Lyktin var svona dáldið eins og streptókokkalykt ef einhver kannast við þá ýldufýlu.

Þennan fnyk hef ég ekki fundið síðan smiðurinn með streptókokkana reyndi við mig í strætó þarna um árið. Svo þegar hann bað mig um símanúmerið mitt átti ég erfitt með að hemja undrun mína. Ég snéri nefnilega höfðinu að glugganum alla ferðina og svaraði í einsatkvæðisorðum og spurði engra spurninga. Furðulega vanhæfur í því að meta andstæður greyið. Kannski var hann bara með hita eða eitthvað vanheill á geði.

Eiginmaður minn er að skoða skipaferðir á netinu. Það væri nú bara gaman að sigla heim.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er þessi Deitch þessi Deitch sem teiknar með syni sínum? Gamli er með tagl?

Held að þeir hafi einusinni verið að tala uppí skólanum sem þú ert í og ég var í.

Var svo langt frá að ég fann enga andfýlu, en púúhúhúff hvað ég er feginn að hafa setið undir henni.

Mundu bara að lykt--og fýla/fnykur/óþefur--eru litlar flögrandi agnir af einhverju solid. Þ.e., kúkalykt eru litlar kúkaflögur sem flögra í andlitið og uppí nefið, og andfýlan í dag samanstóð af litlum (og stórum) munnmyglukögglum að húða andlitið þitt.

Pæling.

Nafnlaus sagði...

NEI!

FEGINN AÐ HAFA SETIÐ ekki UNDIR HENNI!!!

Vil ekkert sitja undir andfýlu, jesús k. ristur!

odi hattarinn sagði...

já þú mátt alveg vera feginn. Hún var næstum því nógu og slæm til þess að maður yrði að segja honum frá því.

Heyrðu ég var að lesa þessa bloggfærslu yfir og tók eftir að ég sagði andstæður í staðinn fyrir aðstæður. Hvers vegna Lóa? Æi bara.

odi hattarinn sagði...

úps, gleymdi, jú hann er með tagl.

Nafnlaus sagði...

já, kannski geturðu sólað þig á dekkinu á gullfossi á leiðinni framhjá kanada. ferð bara í pels utanyfir bikiníið til að hitajafna.

odi hattarinn sagði...

ahhh, hljómar vel. Núna vantar mig bara farmiða, bikiní og pels.

Kristín sagði...

Ég kúgaðist tvivar við lesturinn.